Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1975, Page 93
FÖNG TIL BÚMARKAFRÆÐI
97
mark Þuríðar, ÞSD. 1 kassanum var varðveittur lítill grænlitaður
þráðarleggur, markaður þremur samsettum skorum. Ég spurði hvað
þær hefðu að merk.ja, og Arnlaug svaraði: „Þetta er búmarkið hans
Sveins á Skála,“ en Sveinn Jónsson á Skála (1750—1838) var
maður Þuríðar. Sama búmark sá ég síðar á reipahögld sem kom upp
úr bæjarrústum í Vallnatúni. Á þeim sama stað hafði búið fóstur-
dóttir Sveins á Skála og kynni högldin að hafa verið frá reipum sem
hann hefði lagt í bú hennar. Sveinn Jónsson bjó í miðbænum á
Ystaskála og ég man að búmarkið var stundum kennt við býlið og
nefnt „gamla miðbæjar búmarkið“. Það er tveir tengdir skákrossar
eða tvísett X, þar sem ein skáskora gengur yfir tvær skáskorur.
Einar Sighvatsson hreppstjóri á Ystaskála (1792—1878) var gift-
ur Arnlaugu dóttur Sveins Jónssonar á Skála. Sonur þeirra var
Sveinn bóndi í Nýjabæ undir Eyjafjöllum (1834—1881). Hann tók
upp búmark Sveins afa síns, og hefur þar í senn ráðið ætt og nafn.
Einar sonur Sveins bjó eftir hann í Nýjabæ og notaði sama búmark.
Enn er það að finna í Nýjabæ á byrðarnál úr búi Einars, sonar
Einars Sveinssonar. Annar sonur Einars Sveinssonar í Nýjabæ er
Jón bóndi á Núpi undir Eyjafjöllum. Hann byrjaði búskap 1931 og
tók upp búmark ættarinnar. Með því markaði hann t. d. skóflur,
kvíslar, hamarsköft, hagldir og byrðarnálar. Jón býr enn á Núpi og
á í búi sínu gripi með búmarkinu. Reipahögld, sem ég fékk hjá Jóni,
er að því leyti sérstaklega merk, að hún ber á sama fleti búmarkið
og brennimark eigandans, sem er upphafsstafir hans, J. E. Högldin
er smíðuð af Jóni. Telja verður að hjá Jóni á Núpi mæti manni lif-
andi búmark.
Reipahagldir, sem byggðasafnið í Skógum eignaðist úr búi Gísla
Einarssonar bónda á Húsum í Holtum, bera búmark sem er skylt
gamla miðbæjarmarkinu. Þar gengur ein skáskora yfir þrjár ská-
skorur og mynda þrísettan skákross. Ekkert veit ég um sögu þess
búmarks.
Á æskuheimili mínu var til byrðarnál úr hvalbeini og var markað
á hana búmark Einars Sighvatssonar á Ystaskála, en hann var afi
Amlaugar Tómasdóttur. Þetta búmark var svonefnd fuglskló eða
kló og var oft kennt við heimilið sem átti það, nefnt suðurbæjar-
klóin eða Skálaklóin. Einar á Skála flutti þangað frá Skálakoti 1838.
Búmarkið var einnig notað af föður hans, Sighvati Einarssyni í
Skálakoti (1760—1846). Tveir synir Einars á Skála notuðu búmark
hans, þeir Einar bóndi í Steinum, síðast á Bjólu í Holtum (1833—
1899) og Jón bóndi á Ystaskála (1838—1926). Áslaug dóttir Einars
7