Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1975, Síða 110

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1975, Síða 110
114 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS og síðan bænahús. Þar hefur verið þingstaður Svarfdælinga frá alda öðli til 1728 (þar til nú, segir þar). Má hér sjá forn merki til, sem er lögrétta og offursteinn, heitir því hreppurinn Grundarhreppur." Þessi offursteinn sést nú ekki, sem líklega hefur átt að vera blót- steinn, en getur verið að hann sé í jörð sokkinn. Nú eru landamerki milli Grundar og Ytra-Garðshorns í Blakksgerðisgarð hinn syðra. Fyrrmeir var Ytra-Garðshorn kallað Grundar-Garðshom, og er lík- legt að hvör tveggju Garðshornin hafi verið fyrrmeir byggð úr Grundarlandi til forna. Þessar þrjár jarðir eru einar af Eyjafjarðar- sýslu lénsjörðum. 10. Eikibrekka: Nú ókunnugt nafn, en auðráðið eftir sögunni að eru brekkurnar suður og upp af Blakksgerði. 11. Eikisíki: Af sumum kallað svo enn vestasta kvísl í Svarfaðar- dalsá, sem rennur undir melunum suður og neðan Grund, og hefur tréð átt að vera dregið fram ána í Tunguna, þar sem skipið var byggt.10 12. Skorðumýri, er nú oftast nefnd Skriðumýri, eins og líka stend- ur í einu handriti af Svarfdælu, og hefur síðar fengið það nafn, því Hofsáin hefur rifið annan farveg en hún hefur haft til forna, út og ofan mýrina og borið á hana grjót. Þessi mýri er suður og ofan frá Hofi og í Hofslandi gegnt Grund og ber það vel saman við söguna.* 11 Þar var skorðað skipið Islendingur eftir það að það var af útdrættinum, iB 841 8vo, líklega þó ekki gerð eftir frumbókinni, því að í henni finnast ekki rök fyrir viðbót Þ. Þ. við ártalið 1728, þar til nú segir þar. Olavius hefur fengið þær upplýsingar seint á 18. öld að Blakksgerði hafi verið byggt ból áður og telur það því með eyðibæjum í Tjarnarsókn: „Blængs- eller Klængsgerde, i Tunet hos Gaarden Grund; meenes i forrige Tider at have tient til Trælleboelig". Telur hann staðinn byggilegan, en þó ekki meira en svo (merkir hann með tveimur stjörnum). O. Olavius: Oeconomisk Reise, II. Kbh. 1780, bls. 328. Blakksgerði byggðist loks 1898. Bærinn brann þar 1934 og var þá byggt steinhús á öðrum stað, en í eyði fór jörðin um 1958. Hún var talin hluti úr Grund og því nefnd Syðrigrund frá því um 1928. 10 Trúlegt virðist að örnefnið Eikisíki sé nýlega upp tekið eftir sögunni, sbr. Eyfirðinga sögur 1956, bls. 156 nm. (Svo er hér vitnað til Svarfdæla sögu í íslenzkum fornritum IX, útg. Jónas Kristjánsson, Reykjavík 1956). Nafns- ins er ekki getið í ömefnaskrá. 11 Líklega er nafnið Skorðumýri tiltölulega nýlega upp tekið eftir sögunni. Eins og Þ. Þ. segir kemur myndin Skriðumýri fyrir í uppskriftum sögunnar, sjá Svarfdælasögu 1966, bls. xxv og xxix, og bendir það til staðþekkingar. t örnefnaskrá frá 1958 tíundar Gísli Jónsson á Hofi aðeins myndina Skorðu- mýri og virðist ekki þekkja afbrigðið Skriðumýri, þótt Þ. Þ. segi að svo sé oftast nefnt.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.