Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1975, Qupperneq 143
SKÝRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 1974
147
rétting þess er eftir. Baðstofan var tekin ofan og þarf talsvert að
lagfæra hana að viðum við uppsetningu að nýju.
Á Keldum var unnið að minni háttar viðgerð og lagfæringum, en
talsverðrar bilunar varð vart í búrinu og þar sem sýnt þótti að gera
yrði bænum mikið til góða innan tíðar var ákveðið að láta viðgerð
bíða næsta árs heldur en að ráðast í hana undir haustið.
Geta má þess að Þingvallakirkja, sem gert var rækilega við fyrir
nokkrum árum og þá var getið um í skýrslu, endurheimti sína gömlu
altaristöflu á árinu. Þessi tafla er frá því um 1830 og máluð af
Ófeigi Jónssyni bónda í Heiðarbæ, óvenjulega fjölhæfum listamanni
sem einnig málaði Þingvallakirkju innan þá nýsmíðaða og málað
hefur altaristöflur í fleiri kirkjum þar um slóðir. Á töflunni er kvöld-
máltíðarmynd, en hún var seld frá kirkjunni árið 1899 er kirkjan
hafði fengið nýja töflu. Ensk hefðarkona, Mrs. Disney Leith, keypti
gömlu töfluna fyrir 10 krónur, en að frumkvæði sr. Eiríks Eiríks-
sonar þjóðgarðsvarðar hafði Magnús Magnússon í Edinborg uppi á
töflunni í kirkjunni í Shorwell á The Isle of Wight við suðurströnd
Englands, en þar átti Leithfjölskyldan sumarhús. Fyrir ötula milli-
göngu Magnúsar ákvað sóknarnefndin í Shorwell að afhenda Þing-
vallakirkju töfluna aftur gegn því að fá eftirmynd af henni í staðinn,
og kom taflan hingað til lands 23. janúar. Þjóðminjasafnið kostaði
gerð nýju töflunnar sem Aage Nielsen-Edwin málaði, en gamla taflan
var sett upp á sinn fyrri stað yfir altari Þingvallakirkju við guðs-
þjónustu hinn 1. desember, þar sem viðstaddir voru meðal annars
biskup Islands, forsætisráðherra, Þingvallanefnd og sóknarprestur-
inn í Shorwell, sem Þingvallanefnd bauð sérstaklega til landsins
af þessu tilefni.
Enn hefur enginn botn fengist í málum Nesstofu og hafa kaup-
samningar strandað á ýmsum atriðum, nú síðast skipulagsmálum, en
matsnefnd hefur þó verið skipuð til að skila yfirmati. Prófessor Jón
Steffensen, sem verið hefur mikill áhugamaður um björgun hússins,
sýndi þá fágætu rausn að gefa 1 milljón króna til væntanlegrar við-
gerðar stofunnar með loforði um annað eins framlag að ári. Mun
þessi höfðinglega gjöf vissulega verða til að létta undir við viðgerð,
er þar að kemur, en vonandi dregst þetta mál ekki allt of lengi úr
þessu.
Aðalviðgerðin var sem áður á Viðeyjarstofu, en á árinu var lögð
skífa á meginhluta þaksins. Ekki náðist þó að leggja skífuna á
valmana, en nú má heita að viðgerð hússins sé lokið hið ytra.