Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 05.01.1986, Page 48

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 05.01.1986, Page 48
110 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS laufabrauð á 19. öld orðið alþýðu manna á Norður- og Norðausturlandi jólabrauð og, um tíma, veislukostur, með því að nota ódýrara hráefni — mjöl og tólg - sem frenrur var á hennar færi að veita sér á hátíðum og tyllidögum. IV 6. mynd. Laufabranðsskiirðiir, skýringannynd. Skorið í kökuna tvöfalda, henni jlett suiidnr og annað hvert laufbrctt upp. Ur Húsfreyjunni, 4. tbl. 1973. - Dia- gratnfor cutting leafbread. Thc brcad is folded and cut on thc double, then opencd up and every second „leaf' folded back. Því miður lýsa hvorki Jón Grunnvíkingur né Magnús konferensráð skurðinum á laufabrauðinu nánar en fram kom hér í fyrsta kafla, þ.e. annars vegar að brauðið sé laufótt og útskorið með margvíslcga löguðunr mynd- um og hins vegar að kök- urnar séu útskornar ýmis- lega. Ekki eru heldur kunnar nákvæmar lýsingar á laufa- brauðsskurði frá 19. öld. í fyrri grein Ólafs Davíðs- sonar kemur aðcins fram að í brauðið hafi verið skorið alls konar útflúr með hnífum og öðrum verkfærum, og sumar kökurnar ekki verið annað en rósaverk; í þeirri seinni að þær hafi verið allar útskornar með laufum og rósum. Elín Briem, í Kvenna- fræðaranwn, er jafnvel enn fáorðari um skurðinn, nefnir einungis að lauf séu skorin í kökurnar. Elsta þekkta heimild þar sem ítarlega eru rædd og útlistuð skurðarmunstur í laufakökum er raunar aðeins rúmlega fimmtíu ára gömul, grein Jóhanncsar Friðlaugssonar sem áður er nefnd. Er þar bæði lýst kökugerðinni sjálfri og skurðinum. Venjulega var skorið með vasalmíf, 7. myiid. Bókmcrki ásamt skýringum. Úr fóndurbók eftir Lagertha Broch, Morskab for born, prentaðri í Kristjaníu 1909. - Book mark witli diagrams of manner of execution, frotn a hand craft book for children by Lagertha Broch, Morskab for born, printed in Kristiania 1909.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.