Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 05.01.1986, Page 55

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 05.01.1986, Page 55
ÁRNI BJÖRNSSON ELDBJÖRG Affaradagur jóla Orðið affara(r)dagur virðist ýmist merkja burtfarardag, síðasta dag eða daginn cftir, og er raunar ekkert því til fyrirstöðu, að þetta geti allt átt við rök að styðjast. Það kemur alloft fyrir í bókum frá 13. og 14. öld, og ýmist í sambandinu affaradagur jóla eða affarardagur veislu, sem stundum er reyndar jólaveisla. Fyrst skulu færð fram dæmi um veislulok: í Þorláks sögu segir frá veislu í Bæ í Borgarfirði, sem af samhenginu virðist eiga sér stað í vísitasíufcrð biskups að sumarlagi: Affarar dag (affara daginn) veislunnar gaf Högni biskupi sæiniligar gjafir.1 I Þorsteins þætti uxafóts er um jólaveislu að ræða: Fór veislan fram, og affaradag vcislunnar áður menn skyldu burt fara, gekk f>or- steinn fyrir ívar.2 í Söguþætti af Hákoni Hárekssyni segir einnig frá jólaveislu: Og affarakvcld veislunnar, sem frá skal ríða um myrgininn cftir, er drukkið lengi á nótt fram.3 f síðasta dæminu er augljóst, að um er að ræða síðasta kvöld sjálfrar veislunnar, en í hinum dæmunum eru áhöld um, hvort átt er við loka- dag hennar eða daginn eftir að veislu lýkur. Svipuðu máli gegnir um sum dæmi varðandi jólalok, enda hafa útgefendur ýmist álitið, að þar væri átt við 6. eða 7. janúar, þ.c. þrettándann eða daginn eftir þrett- ánda. En ekki er vitað til, að íslendingar hafi látið jólin standa lengur en til þrettánda, þótt slíkt þekktist í öðrum löndum eins og getið mun verða (sjá bls. 119-120). Skulu þessi dæmi nú rakin. í Magnúss sögu blinda og Haralds gilla í Heimskringlu segir: En affaradag jólanna þá lct Haraldur konungur blása til brautlögu liðinu. Og í Hákonar sögu herðibreiðs segir:

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.