Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 05.01.1986, Page 73
ANTON HOLT
AÐ REIKNA MEÐ PENINGUM
„Bacði sveskjur, fíkjur, rúsínur, tertur og allrahanda sætindi, svo og
líka heilan lióp af stríðsmönnum, veiðimönnum og dýrum úr blýi,
fallega, nýja reikningspeninga, heilmikið af leirmyndum".
I5essi texti, þótt hann sé þýskættaður, bendir til þess að reikningspcn-
ingar hafi ekki verið íslendingum alfarið ókunnir. Hannes Finnsson
nefnir hér reikningspeninga í Kvöldvökum 1979 eins og textinn ber
með sér. Kunnáttumenn segja þó að leikritshornið í Kvöldvökunum,
þaðan sem þessi texti er tekinn, sé þýtt úr þýsku og því vart marktækt
dæmi um íslenska notkun reikningspeninga.
Annan texta öllu eldri þekkjum við líka sem rennir stoðum undir þá
hugmynd að hérlendis hafi reikningspeningar verið notaðir. Þann texta
er að finna í Sjöorðabók Jóns Vídalíns (útg. 1716). Þar stendur: