Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 05.01.1986, Page 95

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 05.01.1986, Page 95
FORNLEIFARANNSÓKN AP SUÐURGÖTU 7 [ REYKJAVÍK 157 að efni sem verða til við eldgos og berist í lífrænt efni hérlendis, valdi því að niðurstöður aldursákvarðana gefi of háan aldur.2,) Henrik Tauber, forstöðumaður C14 aldursgreiningarstofnunarinnar í Kaupmannahöfn, telur þessa tilgátu Ingridar ólíklega. Hann hefur aldursgreint viðarsýni frá Bergþórshvoli, og telur að niðurstöður þeirrar greiningar hafi ekki gefið hærri aldur en hann gerði ráð fyrir.3" Einnig hefur þeirri hugmynd skotið upp meðal þeirra er stunda C14 aldursgreiningu, að mögulegt sé, að úthafsloftslagið hafi villandi áhrif á niðurstöður C14 aldursgreiningar hérlendis.31 Engar ítarlegar rannsóknir hafa enn sem komið er verið gerðar á áreiðanleika C14 aldursgreiningar á íslandi. Verður því að taka allar niðurstöður C14 aldursgreiningar á íslenskum sýnum með fyrirvara. Út frá þeim forsendum, sem voru gefnar til að aldursgreina hús IV, hefur það verið í notkun á árunum 905—975 e.Kr. eða jafnvel nokkrum áratugum fyrr eða síðar. Má í mesta lagi reikna með 50 árum til eða frá þeim forsendum, sem Henrik Tauber gefur fyrir C14 útreikningun- um.32 Séu útreikningar Taubers hafði í huga, virðist hús IV því vera meðal elstu byggðaleifa, sem fundist hafa í Reykjavík cnn sem komið er. Aldursgreiningin bendir þó til þess, að byggðaleifarnar séu um 100 árum yngri en elstu húsin við Aðalstræti.33 Niðurstaða Árangur rannsóknarinnar á lóðinni að Suðurgötu 7 í Reykjavík varð eftirfarandi: Á suðurhluta lóðarinnar komu í ljós leifar smiðju, sem byggð var 1842 (hús I). Svo virðist, senr vatn hafi verið leitt í hana um ræsi úr tjörninni. Undirstöður girðinga lágu í NV-SV sunnan við smiðjuna (a,b,c,d,e) og í NA-SV frá norðvesturhorni hennar (,,aa“). Vestan við smiðjuna hefur verið öskuhaugur. Móösku hefur verið dreift um suðvestanvert svæðið. Móöskulagið náði inn á lóð Suðurgötu 13. Á norðanverðu svæðinu fundust leifar tveggja geymsla, sem byggðar voru á síðari hluta 19. aldar (hús II og III). Undir geymslunum var hús með torfveggjum (hús IV). Það var um 1.50 metrum undir yfirborði lóðarinnar. í gólfi hússins voru stoðahol- ur, eldsprungnir steinar, viðarkol og aska. Moldin úr gólfinu var síuð til að athuga hvort skordýraleifar leyndust í því. En þær veita oft upp-

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.