Norðurljósið - 01.01.1965, Síða 53

Norðurljósið - 01.01.1965, Síða 53
NORÐURLJOSIÐ 53 ann og kom þangað rispuð, forug og niðurbrotin. Aldrei sæi hún flugdrekann sinn oftar. Þarna skjátlaðist henni. En jafnvel þér mundi aldrei detta í hug, hvar hún fann hann. Mamma hennar og hún voru úti í borginni að verzla næsta laugardag, — og þarna var hann þá í „drasl“ húð- inni, sem seldi alls konar notaða hluti. Hún var komin inn í búðina, áður en mamma hennar tók eftir, að hún var farin frá henni. „Þetta er flug- drekinn minn, þarna í glugganum, gerðu svo vel að láta mig fá hann.“ Búðarmaðurinn leit á hana. „Æi-jæja, skilur þú, unga stúlka, að ég veit ekk- ert um það. Eg lét lítinn dreng fá peninga fyrir þennan dreka. Ég býst við, að þú verðir að borga fyrir hann, ef þú vilt fá hann. Hann kostar 45 kr.“ „O, mamma,“ sagði hún, „ég á aðeins 24 kr. — hvað get ég gert?“ „Eg skal lána þér peningana,“ sagði mamma. „Þegar þú ert búin að spara saman, getur þú borg- að mér hitt.“ Jill fór heim og hélt flugdrekanum fast upp að sér. Hún var hamingjusamari en hún hafði nokkurn tíma verið, síðan þennan ólánsdag, er hann týndist. Samt var það skrýtið, hún vildi ekki láta hann fljúga, þangað til hún var búin að horga mömmu sinni, og hún átti hann aftur. Þá Jór hún með hann út fyrir borgina í annað sinn og hélt með varúð utan um hann. Hún mundi eftir öllum stundunum, þegar hún var að klippa og sauma, líma og núa með sandpappír, og síðan . . . allt, sem hún þurfti að spara, viku eftir viku að hæta krónu við, unz hún var búin að borga mömmu allt, og flugdrekinn var orðinn eign hennar aftur. „Þú ert tvisvar sinnum minn,“ hvíslaði hún, „tvisvar minn. Eg hjó þig til, svo keypti ég þig. Þú ert tvisvar minn.“ Það er ekki auðvelt að skilja, hvernig Jesús keypti okkur, „endurleysti“, okkur, eins og biblían kallar það, með því að deyja á krossinum, en hann gerði það. Fyrst skapaði Guð okkur, og síðan keypti Jesús okkur, svo að við erum tvisvar hans, því að Jesús er Guð. — Jesús er Guð. 7. PUMPUÞORP. Pumpuþorp! Er það ekki skrýtið nafn? Ferðu ekki að hlæja að því? Jæja, það eru margir staðir, sem heita skrýtnum nöfnum. Þeir höfðu ekki vatnsleiðslu í Pumpuþorpi. Alls ekki! Það var ekki hægt að snúa krananum og láta renna í ketilinn. En í miðju þorpinu var sléttur völlur. Yfir hann vöguðu og kjöguðu gæsir og endur á leiðinni út á tjörnina. En á vellinum stóð vatns- dæla. Til dælunnar komu allar mömmurnar í þorp- inu til að fylla fötur sínar með köldu, tæru vatni, sem streymdi út um stútinn á gömlu dælunni. Þarna mættust konurnar og sögðu hver annarri fréttir úr þorpinu, áður en þær báru heim vatnið til dagsins. Dag einn kom eitthvað hræðilegt fyrir! Dælan í Pumpuþorpi dældi ekki öðru upp en svartri leðju! Enginn vissi, hvernig þetta byrjaði, en ein konan, frú Brown (brán) kallaði til frú Robinson: „Dælan í Pumpuþorpi dælir aðeins upp óhreinni, svartri leðju. Hvað eigum við að gera?“ Nú voru konmar þarna margar konur, sem töl- uðu, veifuðu örmunum og töluðu, og enginn vissi, hvað átti að gera, unz einhver stakk upp á því, að þær færu heim og segðu mönnum sínum frá þessu. Og það gerðu þær. Það var líka skynsamlegt af þeim. Um kvöldið koniu karlmennirnir saman í smiðj- unni hjá járnsmiðnum til að spjalla um þessi vand- ræði. Járnsmiðurinn stórvaxni hóf fyrstur máls. „Vinir mínir,“ sagði hann, „það er hræðilegty sem hefir komið fyrir. Vatnsdælan í Pumpuþorpi dælir ekki upp neinu nema óhreinni, saurugri, svartri leðju. Hvað eigum við að gera?“ Þeir fóru allir að tala í einu. Kliðurinn var eins og í öndunum, þegar þær voru að kjaga yfir völlinn niður að tjörninni á morgnana og heim aftur á kvöldin. En allir þögnuðu andartak, þegar lítill maður reis á fætur og byrjaði að tala með skræk- um rómi: „Vinir mínir, ég á gamla bók heima,“ sagði hann, „og í bókinni minni stendur: ,Hvernig getur nokkur látið hreint koma frá óhreinu‘?“ Og hann settist niður. Jafnskjótt og hann var setztur — enginn gaf auð- vitað nokkurn gaum að því, sem hann sagði — fóru þeir allir að tala í einu, unz framorðið var og þeir urðu að fara heim til kvíðafullra kvenna sinna. „Það er allt í lagi,“ sögðu þeir konunum sínum,, „við höfum ákveðið, hvað við eigum að gera.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Norðurljósið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norðurljósið
https://timarit.is/publication/128

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.