Norðurljósið - 01.01.1967, Page 19
NORÐURLJ ÓSIÐ
19
frá því, að svo margt fólk í Chile sé í sjúkrahúsum af völdum
áfengis, að það þurfi 45 af hverjum 100 sjúkrarúmum.
Stj órnarblaðið í Chile, La Nacion, staðhæfir, að annarhvor
fullorðinn karlmaður í C'hile sé annaðhvort orðinn áfengisþræll
eða sé á leiðinni að verða það. Tíundi hver maður deyr af „cirr-
hosis,“ spiklifur, en það er lifrarsjúkdómur, sem aðeins ásæk-
ir drykkjumenn.
Af hverju stafar allur þessi drykkjuskapur í Ghile? Ekki af
því, að fólkið fái ekki að kynnast víninu nógu snemma. Sam-
kvæmt heimild áðurnefndrar fréttastofu, Associated Press, er
það algeng sjón í matsöluhúsum í Chile, að foreldrar hella víni
í glös barna sinna. Fólkið notar rauðvín og hvítvín mikið, en
einnig sterkari drykki. í glös yngri barnanna er bætt ölkeldu-
vatni eða gosdrykkjum, stöku sinnum.
Hvernig ætlar svo stjórnin í Ohile að snúast við vandamáli
ofdrykkjunnar? Hún getur ekki reynt þá aðferð, að kenna börn-
um víndrykkju. Hún hefir reynzt gagnslaus og verr en það.
Ef minnið svíkur mig ekki, þá hefir þeirri hugmynd verið
hreyft hér á landi, að íslendingar ættu að taka Frakka sér til
fyrirmyndar í neyzlu áfengis. „Þar drekka allir, en ekki sér vín
á nokkrum manni,“ var víst komizt að orði.
Þannig lítur yfirborðið út, fagurt eins og rautt, en maðksmogið
epli. Engin þjóð í Evrópu er iharðar leikin af völdum vínsins en
Frakkar, hefi ég lesið. Þar var sagt, að mikill fjöldi manna ynni
hvorki fyrir sér né sínum vegna ofneyzlu áfengis. Þar alast böm-
in upp með víninu, en áfengið bindur mörg þeirra fjötri sínum
eigi að síður, þegar þau eldast.
Kennsla barna í vínnautn er engin lausn á vandamáli ofdrykkj-
unnar. Rætur hennar standa djúpt í manneðlinu, jafnvel fyrir
utan það, að minnsta kosti stundum.
Rótin að ofdrykkju manna heitir Synd.
Það er eðli syndarinnar, að hún skilur manninn frá Guði. Án
Guðs er maðurinn eins og rafleiðslan án rafmagnsins, eins og
slagharpan án strengja, eins og líkaminn án lífsaflsins, sem ber
hann uppi, eins og fagur hanzki, sem vantar hönd til að fylla sig.
Kristur Jesús kom í heiminn til að frelsa synduga menn. Hann
birtist til að burttaka syndir. Hann kom til að afmá millivegginn,
syndina, sem skilur að Guð og menn. Hann gerði það með fórn
sinni á krossinum á Golgata.
Jesús Kristur vill, fyrir heilagan Anda, koma inn í hjörtu okk-
ar mannanna, og hann gerir það, þegar við opnum fyrir honum,