Norðurljósið - 01.01.1967, Page 31
NORÐURLJÓSIÐ
31
Þegar þjóðin sem heild er kristin að nafninu, þegar fjöldi
manna efar eða neitar tilveru Guðs, þegar Jesús Kristur er gerður
að venjulegum manni sem ég eða þú, þegar hann er rændur guð-
dómi sínum og frelsaratign, þá er trúarvakning lífsskilyrði, eigi
sönn kristin trú að lifa hér í landi.
Hvað er þá trúarvakning?
Hún er innstreymi lífs frá Guði í anda mannsins. Einstakl-
ingar, tugum, hundruðum eða þúsundum saman, fullorðið fólk,
æskufólk og börn, opna hjarta sitt fyrir Jesú Kristi, bjóða hon-
um að koma og taka sér bústað hið innra með sér.
Samfara þessu og oftast á undan því, að Kristi sé boðin inn-
ganga í bjartað, er uppger við Guð. Týndi sonurinn, er sóað
hafði eigum sínum í fjarlæga landinu, byrjaði fyrst á því að
segja við föður sinn: „Faðir, ég hefi syndgað móti himninum
og fyrir þér.“ Kröftug prédikun, sem ekki kallar syndina nein-
um gælunöfnum, hefir vakið samvizkuna. Eða: manninum verð-
ur ljóst, að Kristur hefir svo mikið að bjóða og gefa, að lífið án
hans er raunverulega ekkert líf. Þess vegna verður Kristur og
lífið með honum eftirsóknarverðast af öllu, sem fáanlegt er í
þessum heimi. Margir hafa alltaf verið að leita einhvers, sem
þeir vissu ekki í raun og veru, hvað var. Alit í einu sjá þeir: Það
er einmitt Jesús Kristur, sem ég hefi verið að Ieita. Mig hefir
vantað hann. Þess vegna hefir þjáð mig þetta sálarhungur, þessi
innri, óslökkvandi þorsti í hamingju og frið. Sumir hafa alltaf
farið á mis við kærleikann, sem þeir þráðu. Þeim verður ljóst,
að Guð hefir alltaf elskað þá, og að þeir geta komizt í samband
við hann, þegar þeir opna hjarta sitt fyrir Jesú Kristi. Þá fara
þeir að njóta hins guðlega kærleika, öðlast hamingju og sálarfrið.
Hvernig á trúarvákning að byrja? Hvar á hún að hefjast?
í mér. í þér. „Ó, Guð, sendu vakningu, og láttu hana byrja í
mér.“ Þetta er nokkuð gömul bæn, sem getur reynzt vel enn á
okkar tímum.
Þarfnast þú ekki lífsins frá Guði? Er Kristur orðinn þunga-
miðja ævi þinnar? Langar þig til að þóknast 'honum? Þráir þú
að þekkja hann? Þjóðin sem heild þarfnast nýs, andlegs lífs. Er
það ekki þín þörf?
Hver vill snúa sér til Krists, opna hjarta sitt og veita honum
inngöngu til þess að hann taki við stjórninni, eins og hjá James
McQuilkin? Hver vill byrja að biðja? Biðja þrotlaust um bæna-
félaga, unz hann kemur? Hvaða æskumaður vill stíga sama spor-
ið og Billy Graham? Hver vill bjóða Guði sig til þjónustu, eins