Norðurljósið - 01.01.1967, Qupperneq 138
138
NORÐURLJOSIÐ
Ægilegf vandamál.
Vestur í New York er hverfi, þar sem kalla má, að afbrota-
æskan ráði lögum og lofum. Þar eru drýgð fleiri morð og of-
beldisverk en nokkurs staðar annars staðar á jafnlitlum bletti
á jörðinni. Enginn maður er óhultur um limi eða líf. Þar eru
alfar syndir drýgðar, sem þekkjast. Þar neytir æskan eiturlyfja
í stórum stíl. Þar er æska, sem óttast ekki Guð né skeytir um
nokkurn mann. Þar er æskufólk án nokkurrar framtíðar nema
nautna og glæpa. Vandamál þessarar æsku leysa hvorki skólar,
Iæknar né lögregla. Saurlífisrit, glæparit og glæpamyndir. sem
æskan les og skoðar, draga hana með feikna afli niður í sorpið
og aurinn.
Fer ékki vandamál þessarar æsku í New York borg að verða
vandamál íslenzkrar æsku senn? Stingur það ekki upp kollinum,
einkanlega í Reykjavík, nú þegar? Hér eru innlend og erlend rit
á boðstólum, sem virðast eiga það markmið eitt: að kenna saur-
lifnað og glæpi. Bryddir ekki einnig talsvert á eiturlyfjaneyzlu?
Ekki vantar áfengisneyzlu og tobaksnautn, jafnvel meðal hálf-
stálpaðra barna. Hvað getur stöðvað snjóflóð í miðjum hlíðum?
Hver getur stöðvað manninn, snúið 'honum á betri brautir, um-
breytt honum og endurskapað, leyst af honum sérhvern fjötur?
Drottinn Jesús getur ]yað. Hann, sem tók í 'hönd sveinsins og
reisti hann á fætur, hann hefir einnig sent þjóna sína inn í þetta
glæpahverfi New York borgar. Einn þeirra, David Wilkerson að
nafni, hefir nýverið ritað bók, sem hann nefnir: „The Cross and
the Switdhblade.“ Við getum néfnt hana: „Krossinn og hnífur-
inn.“ Síra Wilkerson, sem er hvítasunnumaður, hefir sannfærzt
um, að það er lífsleiði, sem gengur að æskunni, þjáir hana, leið-
ir hana til glæpa og nautna. Wilkerson segir unglingunum það,
að Jesús elski þá, hann standi með þeim, hann vilji hjálpa þeim.
Hann segir þeim, að Jesús muni senda heilagan Anda í hjörtu
þeirra, svo að þeir endurfæðist, verði að nýjum mönnum og
konum. Wilkerson fær þá til að leita á fund Jesú, fá fyrirgefning
og frið í sál sína og heilagan Anda í hjarta sitt. Hvað gerist þá?
Lífemið spillta fellur af þeim sem álagahamur. Jafnvel þeir, sem
eiturlyfja neyta, hafa margir fengið fullkomna lausn undan valdi
þeirra. Það gerist enn í dag, að Jesús tekur um æskumannsins
hönd og reisir hann á fætur. Einnig hér 'á íslandi gerist þetta.
Meistarinn er hér og vill finna þig, þú lífsleiða æska. Kristur
hefir djúpa og varanlega gleði til að gefa þér. Hann hefir allt,
sem getur veitt þér sanna hamingju.