Óðinn - 01.01.1928, Side 4
4
ó Ð I N N
æfintýrum.
Hár er nú reistur
hinum heimsfræga
bautasteinn,
sem ber við himin.
Heiður sje honum,
sem hátt stefndi
og misti aldrei
af marki sjón.
Heiður sje honum,
sem hugsjón sinnar
æsku var trúr
til æfiloka.
Heiður sje honum,
sem hefur sveipað
fósturland sitt
frægðarljóma.
Heiður sje honum,
sem hefur borið
nafn, sem er prýði
Norðurlanda. P. G.
En hverju verði
var það keypt?
Um það veit enginn
utan hann sjálfur.
Hann var frægur
um heiminn víða.
En var hann ánægður?
Hver veit þar svarið?
Sögu hans má
með sanni telja
eitt af nútímans
Sjera Pjetur Helgi Hjálmarsson
Og
frú María Elísabet Jónsdóttir.
Síðan kristni var lögtekin árið 1000 hafa ís-
lensku prestarnir verið öndvegishöldar þjóð-
legrar menningar.
Öld eftir öld hafa
þeir verið að
mestu þeir einu
menlamenn, sem
hafa dvalið í svcit-
um landsins og
haldið uppi merki
þjóðernisog menn-
ingar. — Heimili
þeirra hafa verið
— þó nafnið hafi
vantað — einskon-
ar lýðskólar þjóð-
arinnar. En prest-
arnir hafa að jafn-
aði ekki einungis
verið andlegir leið-
logar, lieldur lika forgöngumenn í búnaðarmálum.
Á prestsetrunum hefur oftast verið fyrirmyndar
búskapur, sem aðrir hafa tekið sjer til eftirbreytni.
Menn litu upp til þeirra og þaðan munu flestir
straumar hafa runnið úl yfir sveitirnar. Prestarnir
voru bæði leiðtogar i andlegum málum og önd-
vegishöldar i framförum og búnaðarháttum. Til
þeirra leituðu menn að jafnaði, ef eilthvert
vandamál bar að höndum. Og jeg efast um að
nokkur þjóð eigi prestum sínum meiri þakkar-
skuld að gjalda en íslenska þjóðin. En sú skuld
verður seint metin og goldin að fullu. Og sjón-
arsviftir mun mörgum hafa fundist þegar prest-
unum var fækkað, og margir munu þeir vera,
sem óska þess að preslar væru í hverri sókn
eins og tíðast var áður og biskuparnir tveir,
sem sætu á hinum fornu biskupsselrum.
í þetta sinn flylur Óðinn mynd af einum
kennimanni þjóð-
arinnar, sem starf-
að hefur yfir 30
árað kennimensku
og varð sextugur
síðasll. ár.
Sjera Pjelur Helgi
er fæddur 14. ág.
1867 að Vogum
í Mývatnssveit.
Foreldrar hans
voru þau hjónin
Hjálmar Helgason
Ásmundssonar frá
Skútustöðum og er
það hin alkunna
Skútustaðaætt, og
Sigríður Pjeturs-
dóltir Jónssonar frá Reykjahlíð, og er sú ætt —
Reykjahlíðarættin — þjóðkunn og eigi þörf að
rekja hana hjer. Renna þarna saman tvær hinar
bestu ætlir norður hjer.
Sjera Helgi ólst upp í Vogum hjá foreldrum
sínum þar til hann var 8 ára; þá ílultust for-
eldrar hans að Hólum í Eyjafirði og dvöldust
þar 2 ár, og svo þaðan að Halldórsstöðum í
sömu sveit og voru þar 2 ár. Eftir þessa fjögra
ára burtveru fluttust þau heim í Mývatnssveit-
ina aflur og munu æskustöðvarnar liafa dregið
Pjetur Helgi Hjálmarsson.
María Elísabet Jónsdóttir.