Óðinn - 01.01.1928, Síða 22

Óðinn - 01.01.1928, Síða 22
22 Ó Ð I N N af hinum mörgu velgerðum, sem jeg hef hlotið, að kynnast þeim og heimili þeirra. A leiðinni heim vildi mjer það slys til, að jeg í einhverjum gáska sló stafn- um mínum niður á handriðið á Kópavogsbrúnni og braut hann. Jeg gekk alt af með göngustaf þá. Svo var jeg staflaus, er jeg kom til Reykjavíkur. - En ekki leið á löngu að mjer bættist stafmissirinn. A sumardaginn fyrsta var jeg heima í Vinaminni um hádegisbilið; einhver vina minna hafði beðið mig að vera þá heima, því hann ætlaði þá að koma til mín. Alt í einu heyrði jeg gný sem af fótataki margra manna úti á Mjóstræti. Jeg leit út um gluggann og sá þá mjer til mikillar undrunar stóran flokk af skóla- piltum koma »marcherandi!« Þeir komu allir inn og fyltu stofuna og ganginn; síðan raðaði sjer upp flokk- ur manna og byrjaði að syngja langt og mikið kvæði með laginu: »Hvað er svo glatt«. Jón Þorkelsson frá Reynivöllum söng fyrsta vers sóló og svo tóku hinir undir. Það var gamankvæði til mín, er Þorsteinn Gíslason hafði ort um för mína til Hafnarfjarðar og stafbrotið á Kópavogsbrú. Að kvæðinu sungnu, hjelt einhver ræðu og afhenti mjer forláta staf úr vítisviði, með silfurplötu, þar sem á var rifað: „Tóki, sumard. fyrsta 1892, frá skólabræðrum*, og fylgdi stafnum ein bolla úr Bernhöftsbakaríi. Var nú gleði mikil og fór jeg út með flokknum að vígja nýja stafinn, því ekki hafði jeg neitt að »traktera« hópinn á. Jeg hugsaði mjer að hafa nafnið Tóki fyrir skálda- nafn, hafði jeg þá um veturinn ort eitthvað 9 eða 10 kvæði undir því nafni; það voru kvæði mest út af svaðilförum sjómanna og hetjulífi þeirra, út af mynd- um, sem komu ásamt kvæðunum í sjómannablaðinu »Sæbjörg«, er sjera Oddur Gíslason, prestur i Grinda- vík, gaf út. Þegar hann var að búa blaðið undir prentun dvaldi hann alt af í Vinaminni og fjekk mig til að yrkja fyrir sig. Þótti mjer mjög varið í að kynnast þessum einkennilega manni, sem var eins og gamall víkingur, sterkur og stór, og hafði brennandi áhuga og afarmikla fórnfýsi fyrir áhugamál sín til að bera. Hann var vakinn og sofinn að hugsa um andleg og veraldleg bjargarráð fyrir sjómannastjett landsins, og vildi vekja hana og leiðbeina henni bæði til ákveðins trúarlífs og dáðmikillar framsóknar í því, sem að starfi hennar laut. Hann hafði og mikinn áhuga fyrir heiðingjatrúboðsstarfi, en mætti afarlitlum skilningi, en talsverðri andúð fyrir áhuga sinn. Nokkru síðar fór hann til Ameríku. Dóttir hans, Vilhelmína, var kenslukona við kvennaskóla, sem þann vetur var haldinn í Vinaminni, og var hún bæði vel mentuð og góð stúlka; hafði hún verið nokkur ár í Svíþjóð og gengið þar á skóla. — Hún átti sænskar ljóðabækur, sem hún lánaði mjer. — Allur þessi vetur var mjer hinn ánægjulegasti og finnst mjer, er jeg lít til baka, að sjaldan hafi jeg sælli verið en þá. Okkur Eiríki Kjerúlf kom mæta vel saman og var hann mjer alt af ljúfur og góður vinur. Nú leið svo fram eftir vorinu að ekkert bar til tíð- inda. En svo, er upplestrarfrí skólapilta byrjaði, kom yfir mig áköf löngun til að halda áfram og sá jeg að aldrei mundi jeg hafa þrek í mjer til að lesa utan- skóla undir stúdentspróf. Svo tók jeg mig til og sótti um leyfi til að taka próf upp úr 5. bekk, svo að jeg gæti fengið að vera í 6. bekk næsta ár. Það voru að vísu ekki nema tæpar tvær vikur til prófs, en alí um það fanst mjer best að reyna það. Jeg fjekk leyfið og nú fór jeg að lesa, en mikið þurfti til, ef jeg ætti að geta komist yfir á tveim vikum, það sem jeg hafði ekki kornist á þremur árum. Svo þegar prófið byrj- aði var jeg ekki kominn langt áleiðis. En vorið var sólskinsbjart og sólskin áræðisins yfir mjer. Það voru einkum þrjár greinar, sem jeg kveið fyrir, það var franska, eðlisfræði og gríska. Grísku hafði jeg týnt niður síðan jeg var í skólanum. En hamingjan brást mjer heldur ekki. Jeg fekk góðan vitnisburð í mörg- um greinum. Nóttina áður en jeg átti að taka próf í sögu, dreymdi mig, að jeg væri hermaður í liði Karls tólfta og væri í bardaganum við Narva. Um morgun- inn tók jeg söguna og las um Karf tólfta og. Norð- urlanda ófriðinn mikla. Svo var prófið síðdegis og jeg kom upp í Karli tólfta og fjekk mjög góða ein- kunn. Þannig fylgdi heppnin mjer þar sem hún gat því við komið, en í grísku, frönsku og eðlisfræði fjekk jeg aðeins 3V3 í hverju og var hróðugur yfir. Jeg gaf ekki upp »De Officiis«, og kom upp í De Oratore ólesnum og fjekk 42/3. Jeg komst vel upp í 6. bekk. Þegar prófi var lokið vildi jeg helst ekki fara norður; mig langaði svo til að vera í Reykja- víkur sælunni um sumarið. Það hepnaðist, því jeg fjekk stöðu við verslun Þorláks O. Johnson. Hinn mikli ágætismaður, Þorlákur Johnson, var þá veikur orðinn og var að því kominn að hætta verslun sinni. Hann ætlaði sjer að vera fyrir norðan um sumarið, og fjekk mig til að vera í búðinni að selja vöru af- ganga. Það gekk alt vel, en fremur var lítið að gera, og næði mikið. Jeg var þar eins og hæstráðandi, og synir kaupmannsins, Bjarni og Ólafur, sem þá voru kornungir, voru oft þar með mjer. — Jeg leigði mjer herbergi í kjallaranum í húsi Kristjáns Þorgrímssonar hjá Jakobsen skósmið Færeying. Jeg matbjó mjer sjálfur það sem jeg þurfti. Það var ekki stórt um-

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.