Óðinn - 01.01.1928, Síða 41

Óðinn - 01.01.1928, Síða 41
Ó Ð I N tf 41 að, svo jeg varð nauðugur viljugur að stíga upp á bekkinn. Mjer var nær að fallast hugur er jeg sá hina þjettu mannþyrpingu svo langt út sem hægt var að sjá. Bekkurinn riðaði og titraði allur, svo jeg varð að styðja mig við öxlina á stórvöxnum lífvarðar her- manni, sem stóð fast við bekkinn. Jeg fór svo fyrst að skamma stúdentana fyrir vöntun á drottinhollustu, þar sem þeir á hátíð hægrimanna, sjálfan grundvallar- lagadaginn og það í Kongens Have, gleymdu að tala fyrir minni hans hátignar og sagði, að fyrst danskir stúdentar ekki vildu hylla konung sinn, vildi jeg, sem illa kynni dönsku, tala fyrir konungi íslands, og svo sagði jeg eitthvað um konung og heimsókn hans til Islands og grundvallarlög þau, sem hann hafði gefið, og óskaði að hann mætti lengi lifa; var hrópað nífalt húrra með dynjandi gleði. Síðan stóð upp einn annar og sagði, að rjettmæt hefði verið ofanígjöf Islendings- ins, en af góðleika sínum hefði hann ekki minst á hitt, sem þeir hefðu gert sjer til skammar í kvöld, og það væri það, að þeir hefðu talað fyrir öllum Norðurlöndum nema Islandi, en það hefði átt að koma fyrst. Hann talaði svo nokkur hlýleg orð til íslands og hrópaði mannfjöldinn húrra með. Þá var þessi eini »bjór« búinn og fórum vjer svo allir í fylkingu um garðinn og varð alt að víkja úr vegi. Og svo skildum vjer glaðir og allir algáðir, og hafði þetta verið gott kvöld. Yfirleitt hallaðist jeg hvað pólitík snerti helst að hægri mönnum, þótt mjer líkaði ekki heldur við þá, því mjer þótti þeir of miklir þingræðissinnar, en þingræðið hataði jeg þá eins og ávalt. Þann 16. júní átti jeg að taka heimspekipróf, og var jeg viss um að jeg fengi ekki góða útreið. Það var siður, að íslendingar, sem luku prófi í heimspeki, gáfu Islendingum á Garði »portnarakaffi« eða súkku- laði, með 8 aura bollu. Jeg var spurður, hvað jeg ætl- aði að gefa að prófi loknu. Jeg kvaðst mundu gefa kaffi, ef jeg fengi non, og súkkulaði, ef jeg fengi haud. »En ef þú færð laud“, sagði einhver. «Þá megið þið kjósa, því jeg veit það verður ekki«. »Kampavín þá!« var sagt. Já, jeg lofaði því. Svo mætti jeg til prófs hjá Höffding. Spursmálið kom. Jeg hafði enga hug- mynd um það. Höffding helti vatni á 2 glös og rjetti mjer annað. Svo drukkum við, og á meðan áttaði jeg- mig nokkuð og tók eitthvað, sem jeg kunni nálægt spursmálinu, eins og jeg hefði misskilið það, og þannig gekk það í þófi. En með því að Höffding fann að jeg kunni hingað og þangað, og mundi eftir mjer úr æfingunum, hjelt hann að jeg væri talsvert slarkfær og gaf mjer laud. Jeg var glaður yfir því, en svo var kampavínið. Hepnin kom mjer til hjálp- ar; því kryddsalinn vor Garðbúa, á horninu, hafði keypt upplag af kampavíni á uppboði og kostaði flaskan 3 kr., og keypti jeg eina. Það var nokkuð lítið handa öllum, en jeg hafði lofað kampavíni án þess að tiltaka rúmfangið. Eftir prófið var jeg heima við. Við Kristian Jensen skildum um vorið og kom okkur saman um að það væri betra fyrir báða, en þessi vetur hafði lagt grundvöllinn til æfilangrar vin- áttu, og þótt við ekki værum sambýlismenn lengur, var jeg boðinn í hverju fríi út til foreldra hans, og var þar alt af 4 daga í senn. I júnímánuði kom það fyrir, sem bar í sjer straum- hvörf lífs míns, eða gaf fyrsta tilefni til þeirra. Jeg hef nú ekki talað mikið um hið kristilega líf mitt á þessum vetri. Jeg hef heldur ekki margt eða mikið um það að segja. Hið nýja umhverfi og alt hið nýja, sem mætti mjer, ný vinasambönd og nýtt fjelags- líf, bæði í »Den gamle* og Skotfjelaginu, Garðlífið og þátttaka í fjelagslífi íslendinga, alt tvístraði þetta huganum og dró mig frá andlegri hugsun. Einnig skemtilestur minn var ekki lagaður til að efla kristi- legt líf. Jeg las mest franskar bækur þá. Maupassant, A. Dodet og Emil Zola voru mínir helstu höfundar, en brátt varð jeg Ieiður á Zola, fanst hann of ósið- ferðilegur. Danska höfunda las jeg nokkuð: Drach- mann, og sjer í lagi af þeim eldri M. Goldsmidt. Hann hjelt jeg mest upp á. Hann skrifaði svo fallega að það var unun að lesa hann vegna málsins. — Jeg gekk á nær því hverjum sunnudegi í kirkju og þótti mjer það alt af unaðslegt, og það komu stundir að mjer, að mjer fanst þetta alt of mikið gjálífi, en ver- öldin hafði sín sterku ítök í mjer og jeg átti erfitt með að sleppa henni algerlega. Jeg fann og vissi að jeg tilheyrði Kristi og samt vissi jeg, að jeg lifði ekki eftir kenningu hans. Mjer hitnaði oft um hjartaræt- urnar, er jeg heyrði góða predikun og mjer fanst hún oft stíluð til mín. Af heimatrúboðsstefnunni þekti jeg engan og heyrði ekki annað en ilt um þá stefnu. Það varð mikill úlfaþytur út af ræðu sjera Carls Moe, sem hann hjelt yfir hinum druknuðu sjómönnum á Harboöre á Vestur-Jótlandi, og samt var í mjer eitt- hvað, sem mótmælti þessum árásum. Eitt var líka sem amaði að mjer í trúarlífi mínu, og það var að mig langaði stundum ákaflega til altaris, en jeg trúði á »gerbreytinguna« (transubstantiasion) í sakrament- inu, og jeg var hræddur um að lútherskur prestur vildi ekki taka mig til altaris, ef hann vissi að jeg hefði svo ólútherska skoðun, og að ganga til altaris án þess að hann vissi af þessu fanst mjer vera rangt. En með köflum fanst mjer a jeg gæti ekki lifað án

x

Óðinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.