Óðinn - 01.01.1928, Page 66

Óðinn - 01.01.1928, Page 66
66 ó Ð I N N afgreiða þarf 10 til 12 þúsundir skipa á ári á sóttvarnarstöðinni, og suma daga skifta þau skip tugum, sem þangað koma. Má af því marka, að læknirinn hafi haft þar ærið að starfa. í marsmánuði 1922 fjekk Björgúlfur eins árs leyfi frá læknisstörfum, með fullum launum, og lagði þá þegar af stað áleiðis til íslands, ásamt konu sinni. Komu þau hingað um sumarið og dvöldust hjer um þriggja mánaða skeið. Björg- úlfur fór þá landveg vestur og norður um land, alt austur í Þingeyjarsýslu. Hjeðan fóru þau hjónin til Englands um haustið, en þaðan til Kaupmannahafnar og dvöldust þar fram yfir áramót, en hjeldu þá austur til Sambó og voru þar fram í aprílmánuð 1926, en komu alfarin heim hingað snemma sumars það ár. Mörgum Islendingum leikur hugur á að hverfa heim hingað, þegar þeir hafa verið lengi utan- lands, en oft hafa þeir þá ekki fest hjer yndi, þó að komið hafi, og þá horfið hjeðan innan skamms. Björgúlfur læknir hefur alla tíð verið mjög gróinn við þetta land og ætlað sjer heim, þegar efni levfðu. Hann hefur nú keypt Bessa- staði, eins og áður segir, en þá jörð mun honum lengi hafa leikið hugur á að eignast, og þarf ekki að efa, að hann sitji hana rík- mannlega. Það er jafnan gleðiefni, þegar einhver landa vorra ryður sjer braut erlendis til fjár og met- orða, en eigi hefur öllum enst hamingja til slíks, þótt freistað hafi, og góðan viljann haft að upp- hafi, því að þar eru margir, sem keppa, og njóta þá sumir annara, en Islendingar eiga sjaldan marga að, þegar komið er út fyrir landsteinana. En Björgúlfur læknir hefur ekki þurfl að leita annara ásjár. Hann er einn þeirra hamingju- manna, sem alt verður auðvelt. Með dugnaði sínum, glæsilegri framkomu og drengilegu við- móti hefur honum orðið auðgengin gata til vegs og sæmdar, og honum hafa orðið allir vegir færir, þar sem annara biðu torfærur einar. Og það er trú vina hans, að hann eigi hjer mikið starf óunnið, landi voru til vegs og við- reisnar. B. Sv. 4 Eggert Sigfússon, siðast prestur til Selvogsþinga, var fæddur á Eyrarbakka 22. júní 1840. Hann var sonur Sig- fúsar trjesmiðs Guðmundssonar (alment nefndur Sigfús »snikkari«) og Jarþrúðar Magnúsdóttur, er lengi bjuggu á Skúmstöðum á Eyrarbakka. Sigfús dó 9. janúar 1877, 74 ára að aldri, og var hann alkunnur húsasmiður á sinni tíð eystra, en sjerstaklega þó kirkjusmiður. Dóttir þeirra hjóna var Þóra, kona Eggert bónda Ein- arssonar í Vaðnesi í Grímsnesi. Eins og þá var títt, ritaði sjera Eggert æfisögu sína (vita) á latínu, þá er hann vígðist, og hljóðar hún þannig: »Ego Eggert Sigfússon natus sum in emporio Eyrar- bakka, in toparchia Arnesensi, die 22 Junii 1840, paren- tibus fabro lignario Sigfús Guðmundsson et Jarþrúður Magnúsdóttir. Usque ad annum qaintum decimum apud parentis vixi. Hoc anno in scholam Reykjavicanam sum admissus, quam sex annos freqventavi. Proximis se- quentibus duobus annis, theologiæ studebam in Reykja- vicano seminario pastorali, et inde anno 1863 dimissus sum, charactere: ,Haud illaudabilis primi gradus'. Post hoc tempus pueros docui, in tribus emporiis: Keflavicæ, duo annos; Husavicæ, tres annos; Eyrarbakka, unura annum, donec hoc anno sacerdotium accepi, et heri ordinatus sum, a summo venerando episcopo Islandiæ, dr. P. Petri filio. Reykjavicæ, die 30. Augusti 1869. Eggert Sigfússon«. »Viðbætir (ritaður löngu síðar): Pann 7. október 1869 kom jeg að Hofi á Skagaströnd. Paðau fór jeg I ágúst 1872 að Klausturhólum; par var jeg í 12 ár og kom hingað að Vogsósum þann 6. júní 1884«. Kunnugur maður, Helgi Jónsson, sem lengi var verslunarstjóri í Þorlákshöfn, lýsir sjera Eggert og viðkynningu sinni við hann þannig: »Jeg kyntist sjera Eggert fyrst um 1890. Góð vinátta tókst brátt með okkur og hjelst alla tíð upp frá því. Sjera Eggert var mjög fræðandi; hafði einkum yndi af að tala um söguleg efni og málfræði. Var hann einkum stálminnugur á ártöl. Hann mun og hafa verið stálsleginn í grísku og latínu. Jeg minnist þess, að hann sagði einu sinni við mig, að þýskur prófessor hefði komið til sín að Vogsósum og þeir átt tal saman á latínu. »En hann flaskaði einu sinni á því«, sagði sjera Eggert, »að nota þolfall i stað þágufalls. Ekki var það gotl!«

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.