Óðinn - 01.01.1928, Page 67

Óðinn - 01.01.1928, Page 67
ó Ð I N N 67 Sjera Eggert var töluvert spjehræddur; hann var langskemtilegastur þar sem 3 eða 4 voru saman komnir og þá sjerstaklega væri ofurlítið Sjera Eggert Sigfússon 1867. »tár« til hressingar. Hann var meinfyndinn, ef i það fór. Aldrei sá jeg hann reiðast, en honum gat orðið þungt í skapi, ef honum mislikaði við »skúmana«. Hann hataði fláttskap og hræsni og hafði við- bjóð á hjegómaskapnum; var frábitinn illu um- tali, en gat stungið óþægilega á kaunum þeirra, sem reyndu að narta í hann. í öllum viðskiftum var sjera Eggert hinn áreiðanlegasti og ósínkur mjög. Hann var góður ræðumaður, en talaði sjaldan lengur en fjórð- ung stundar; framburðurinn var ekki að því skapi góður; Jeg á nokkur brjef frá sjera Eggert, er sýna, hve stuttorður en gagnorður hann var. 1 stuttu máli: Jeg geymi hinar bestu minningar um kynni mín af sjera Eggert, og get sagt, að vin- átta hans var mjer til gleði og ánægju alla tið«. Frú Hólmfríður Snorradóttir, sem nú býr að Vogsósum, hefur látið þessa getið um sjera Eggert: »Jeg var samtíða sjera Eggert Sigfússyni síð- asta missirið sem hann lifði. Hann var þá orð- inn talsvert lasburða og þurfti því meiri að- hjúkrunar en áður; fyrir því komst jeg, sem húsmóðir hans, í nokkru nánari kynni við hann en aðrir á heimilinu og fann þá oft, hve góðan mann hann hafði að geyma, að hann var maður, sem í engu mátti vamm sitt vita, en vildi öll- um vel. En sjerkennilegur var hann i hugsun og hátlerni og því mun hann hafa verið mis- skilinn af mörgum, svo sem altítt er um þá menn, er eigi binda bagga sína sömu hnútum og samferðamenn. Hann mun hafa átt allstrangt uppeldi i æsku og því orðið nokkuð dapurri í huga en ella, er hann sá ýmsa vankanta á mönnum og málefnum i lífinu og þá ekki síst þeim, er mikið bárust á og ljetu lítið gott af sjer leiða, en »þóttust menn, en voru ekki«. Stærilæti, mont og hroka hataði hann og var oft meinfyndinn og bituryrtur i þann garð, svo og þeirra, er virtu þessa heims gæði framar öllu öðru, en hirtu minna um að auðga sál sína að góðum hugsunum og göfugu Iíferni til orða og verka. óeigingjarnari mann getur varla en sjera Eggert var, því hann mátti ekkert aumt sjá og gaf lasburða fólki og fátæklingum oftar af sín- um litlu efnum en menn höfðu af að segja. F*á Sjera Eggert Sigfússon 1898. er menn áttu að greiða skyldugjöld sin til hans, t. d. skírnartolla, var hann oft vanur að segja við þá: »Nei, jeg tek ekki við þessu; hafðu það

x

Óðinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.