Óðinn - 01.01.1928, Qupperneq 70

Óðinn - 01.01.1928, Qupperneq 70
70 ó Ð I N N unum viðnám, en að flýja hingað — það hefði orðið þeim ljettbærari dauðdagi. — Guð hjálpar okkur, svaraði konan. — Hvernig má það verða, mælti maðurinn, þar sem við erum hjer varnarlaus innan um ó- argadýr og höggorma. — Og hann reif klæði sín í örvæntingu og grúfði andlitinu niður i jörðina. Hann var með öllu vonlaus, eins og sá, er fengið hefur banasár. En konan sat flötum beinum, spenti greipar um knje sjer og horfði út yfir eyðimörkina. Og svipur hennar lýsti takmarkalausri sorg. Pálminn tók eftir því, að enn óx þyturinn í laufinu. Konan hafði auðsjáanlega orðið þess vör; því að hún leit upp í laufkrónuna. Og um leið hóf hún ósjálfrátt upp hendurnar. Döðlur, döðlurl hrópaði hún. Svo innileg bæn fólst í röddinni, að pálminn óskaði að hann væri ekki hærri en svo, að jafn- auðvelt væri að ná í döðlur hans, eins og að tína rauðu berin af þyrnirunnanum. Hann vissi sem sje að krónan var alsett döðluskúfum, — en hvernig áttu flóttamennirnir að ná til þeirra — slíka ógnar hæð! Maðurinn hafði þegar veitt því eftirtekt, að döðlurnar hjengu svo hátt, að engin leið var að ná þeim. Honum varð það því ekki einu sinni að líta við, en hann hafði hinsvegar orð á því við konuna, að lítið gagnaði að óska þess, sem ómögulegt væri. En barnið, sem var að hlaupa þar í kring og leika sjer að stráum, það heyrði andvörp móð- ur sinnar. Og litli drengurinn gat ekki unað því, að mamma hans fengi ekki það sem hún bað um. — Þegar hann heyrði nefndar döðlur, varð hon- um litið upp í trjeð. Og hann braut heilann um það, hvernig hann ætti nú að fara að því, að ná í döðlurnar. Og það lá við að hrukkur kæmu á ennið undir ljósu lokkunum. Loks brá fyrir brosi á andliti sveinsins. Hann hljóp að pálm- anum, klappaði honum með litlu hendinni og sagði með blíðri barnsrödd; — Beygðu þig, pálmi! Beygðu þig, pálmi! — En — hvað er nú þetta — hvað er um að vera? Það hvein í pálmablöðunum, eins og um þau færi fellibylur og bolurinn kiptist við hvað eftir annað. Pálminn fann, að hjer var við ofurefli að etja. Hann varð að hlýða drengnum litla. Og hann Ijet bolinn sinn háa lúta barninu, eins og menn lúta höfðingjum. Hann laut svo lágt, að krónan mikla með blaktandi blöðunum nam við sand eyðimerkurinnar og bolurinn varð eins og afarmikill bogi. Drengnum virtist alls ekkert bregða við þetta, en hann hljóp að krónunni með fagnaðarópi og tíndi hvern döðluskúfinn á fætur öðrum af gamla pálmanum. Þegar hann þóttist vera búinn að fá nóg, og pálminn lá enn hreyfingarlaus, gekk hann til hans aftur og sagði með innileikans blíðustu rödd: — Rístu upp, pálmi! — rístu upp! Og stóra trjeð rjetti úr sjer hægt og með lotn- ingu, og í blöðunum heyrðíst þytur — eins og hörpuhljómur. — Nú veit jeg yfir hverjum þið syngið lík- sönginn, mælti gamli pálminn, þegar hann var búinn að rjetta úr sjer. Það er ekki yfir neinu þessara flóttamanna. En maðurinn og konan krupu á knje og lof- uðu Guð: — Þú hefur sjeð örvænting okkar og frelsað okkur. Þú ert hinn voldugi, sem beygir stofn pálmans eins og reyrstrá. Hver er sá ó- vinur, er við þurfum að óttast, þegar þú vernd- ar okkur. Næsta sinn, er kaupmannalest fór um eyði- mörkina, sáu þeir að laufkróna pálmans mikla var visnuð. — Hvernig vikur þessu við? sagði einn ferða- mannanna. Þessi pálmi átti ekki að visna fyr en hann liti þann konung, er meiri væri en Salómon. — Má vera að hann hafi sjeð hann, svaraði annar. Árni Jóhannsson. 0 Skilaboð. Sankti Pjetur sagði mjer, að sjálfsagt inn þjer mundi hleypt, en dropann yrði að draga af þjer og daður væri ekki leyft. Fnjóskur. *
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Óðinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.