Óðinn - 01.01.1928, Side 72
72
ÓÐ I N N
Um sveitina vorhlýir vindar
með vonir í fanginu svifu.
Yið heiðarbrún syngjandi svanur
ílaug suður í bláfjalla geim.
1 grasbrekku sátum við saman
við sólskin og vatna hreim.
í útsýn var endalaust hafið;
á aðra hlið vorhvískur móa.
Á vogi skein súð undir segli;
í sveit kvað við lofsöngur spóa.
í blikfegurð leiftrandi ljósa
var ládeyða um hamingju flúð.
Á myrkviðu svarteygðrar sorgar
óf sóldýrð sitt gróðrar skrúð.
í örygð lá gullið í grasi
á glitrandi, sólfáðum engjum.
Og síung rann elfur að ósi
með algleymi’ i titrandi strengjum.
Og djúpt nið’r í dalina færðist
hin dulræna háfjalla kyrð.
Sem tónar í unaði tengjast,
svo tengjast þær nánd og firð.
Og aftur hinn syngjandi svanur
úr suðurátt fluginu sneri.
Nú átti hann alstaðar heima,
því alstaðar fagnaði’ og greri. —
Þú hneigðir mjer höfuð að barmi
og horfðir á konungsins val.
Sem óbrotinn unaðarsöngur
snart eilifð hinn græna dal.
Kvöldganga.
Sól rann til norðurs og sindrandi lækkaði.
Söngvunum fækkaði;
fuglinn sig hreiðrinu fól.
Fljótsheiði ljósbrotum skifti með skuggunum.
Skörtuðu á gluggunum
leiftur frá sígandi sól.
Jeg gekk upp á heiðina, horfði’ yfir sveitina;
hóf svona leitina.
Setst hafði sóley í tún.
Bárðardalsfjöll lögðu bláfeld um hlíðar.
Bláklukkur friðar
lokuðu blöðum á brún.
Gekk jeg á Lágafell, leit yfir heiðina;
ljósgeisla veiðina
óf inn i trega míns traf.
Leiftur af Másvatni leituðu að ómunum,
lofgerðar hljómunum
dýrstu, sem drottinn mjer gaf. —
Norður á fellsbungu för mina laðaði,
fjallstinda baðaði
ljóminn af lækkandi sól.
Öræfin ljósrauð í landsuðri glóðu.
Lambafjöll stóðu
þögul í kvöldroða kjól.
Við Kinnarfjöll sóldýrðin sí og æ lækkaði.
Söngvunum fækkaði.
Dalbotninn döknaði’ í ró.
Langt út á sundinu ljósgeislar tindruðu,
leiftruðu, sindruðu
logum um hvikandi sjó.
1 vesturátt Goðafoss djarflega dunaði,
dýrkeyptum unaði
markaði minninga lönd.
Laxá í austri með lágróma niði,
lokkandi kliði,
dró mig á draumanna strönd.
Sigurjón Friójónsson.
Sjera Friðrik Friðriksson.
Minningar hans, sem birtst hafa hjer í blaðinu, liafa
verið sjerprentaðar og koma út i bók jafnframt þessu
hefti Óðins. Heitir sú bók »Undirbúningsárin. Minn-
ingar frá æskuárum«, og kemur út til minningar um
sextugsafmæli höfundarins, sem var 25. maí p. á. Bókin
er 335 bls. og kostar kr. 7,50, í bandi kr. 10,00. — Óðinn
taldi sjálfsagt, að láta niðurlag minningargreinanna koma
alt í pessu hefti, pótt pað taki par miklu meira rúm en
greinarnar hafa áður tekið í blaðinu, til pess að kaup-
endur pess hefðu fengið bókina alla um leið og hún
kemur út. En petta veldur pví, að heftið, sem nú er
sent út, er stærra en venjulegt er, og líka hefur pað
valdið nokkrum drætti á útkomu heftisins. »Undirbún-
ingsárin« ná fram til pess, er höf. kemur heim frá Khöfn
1897 og stofnar hjer »Kristilegt fjelag ungra manna«, en
upp frá pví helgar hann peim fjelagsskap alt lífsstarf
sitt. Verður næsta bindi æflsögu hans jafnframt saga
pess fjelagsskapar hjer á landi.
Margt af pví, sem koma átti í pessu hefti, verður
vegna prengsla að bíða næsta heftis, en svo er jafnan
ástatt um Óðinn, að fyrirliggjandi efni er miklu meira
en svo, að blaðið rúmi pað.
Næsta hefti mun koma út í október í haust.
%