Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.01.1880, Síða 49
Æfiágrip Jóns biskups Árnasonar.
Eptir Gríin Tliomsen* 1 2 3.
pað hefir síðan ísland komst undir konung, verið ein-
kennilegt fyrir sögu landsins, að biskupar vorir hafa
yfir höfuð haldið taum landsbúa gegn hinu útlenda og
verzlega valdi. f>ví þótt þeir jafnframt hafi eflt klerk-
dóminn, hafa þeir alt að einu allflestir unnað íslenzkum
bókmentum, íslenzkri uppfræðslu og íslenzku þjóðerni.
Meðal þeirra biskupa, sem bezt hafa gengið fram í
þessa stefnu í nýjum sið, eru: Guðbrandur, Oddur Ein-
arsson, Brynjólfur Sveinsson, og, þótt hann væri ekki
þeirrajafni að sálargáfum, en fyllilega að tápi og festu,
Jón biskup Árnason,
fæddur 1665 að Alviðru í Dýrafirði, sonur Árnaprests
í Dýrafjarðarþingum Loptssonar, Péturssonar, Lopts-
sonar, Ormssonar, Loptssonar hins ríka, og Álfheiðar
Sigmundardóttur. Föðurmóðir Jóns biskups var jjórunn
Bjarnadóttir, Björnssonar, Jónssonar biskups Arasonar.
Hann lærði fyrst í heimaskóla hjá föður sínum og því
næst í Skálholtsskóla hjá Olafi skólameistara Jónssyni,
Böðvarssonar prests í Reykholti, afabróður Finns bisk-
ups. Til Kaupmannahafnarháskóla sigldi Jón Árnason
1690, tók þar lærdómspróf í guðfræði með annari ein-
*) Við æfiágrip þetta helir höfundurinn haft hliðsjón af:
1. Finni Johannæi historia ecclesiastica Islandiæ;
2. Bréfum Jóns biskups Arnasonar til Arna prófessors Magnússonar;
3. Handriti Daða Níelssonar.
Timarit hins íslenzka Bókmentafélags. I.
4