Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 1895, Blaðsíða 1
Hvar eru Eddukvæðin til orðin?
Eftir
Finn Jónsson.
--------
Dr. Björn M. Ólsen1 hefur í fyrra árgángi
tímarits þessa, bls. 1—133, birt ritgjörð með þeim
titli, sem hjer stendur fyrir ofan þessa grein; þess-
ari ritgjörð er allri beint móti fyrra helmíngi
bókar minnar á dönsku um fornnorskar og fornís-
lenskar bókmentir, 1. bindi. BMÓ leitast við að
sanna, að skoðanir mínar á heimili Eddukvæðanna,
sem svo eru kölluð, sjeu ekki nógsamlega rökum
studdar.
Jeg er; BMÓ mjög þakklátur, í fysta lagi
fyrir það, hvað fljótt hann hefur orðið við að rann-
saka. bók mína og ritað móti því, sem honum hef-
ur fundist þörf að hrekja og mótmæla; vísindi og
vísindalegar rannsóknir eru í hverju máli nauðsyn-
legar með öllu; líf þeirra, framsókn og framfarir er
einmitt komið undir því, að menn greini á, að menn
deili, eða að menn ræði fram og aftur um mál-
1) Sem jeg hjer eftir leyli mjer að skammstafa BMÓ
Annars vil jeg biðja lesendurna að hafa ritgjörð BMÓ við
hliðina; ella er hætt við, að mönnum skiljist ekki alt til
fulls.
1