Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 1895, Side 21

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 1895, Side 21
21 Islenskt skáld hafa farið eða dottið í hug að hafa það í kvæði, þegar ekkert rak hann til þess, ekki einu sinni hljóðstafirnir, og um mörg orð annars var að velja. Það sem BMO segir um stund er til stoklcsins (í sama kvæði sem hitt, Hárb.lj.), þá er það byggt á misskilníngi á minum orðum. Jeg á ekki við orðið stund, þegar jeg tala um (bls. 62) vegaleingd, sem sje norsk; jeg á náttúrlega við það sem miðað er við, þ. e. orðin til stolcksins, og sýni BMO rojer, hvar hún kemur fyrir f íslensku; þar á móti getur ekkert verið náttúrlegra en þad i Nor- egi. Um jafnendr hef jeg talað varkárlega (»ja, m á s k e ogsá« osfrv.) og þar með talið orðið óáreið- anlegt sem sönnun. Jeg verð að segja, að jeg yfir höfuð að tala hef verið mjög varkár með að leiða einstök orð fram til styrkíngar mínu máli — eins og bók rm'n sýnir —; jeg hef rekið mig sjálfur á, hvað slíkt getur verið hæpið; og skal jeg færa til eitt dæmi. Orðið Tcópa kemur fyrir í Hávamálum og finst í norsku bændamáli enn þann dag í dag; í ísl. bókum finst orðið hvergi, hvorki fyr nje síðar. En í seðlum Árna Magnússonar hef jeg fundið vott um orðið á Islandi. Hann segir: »Kóper otiose contuetur aliqvid nulla observatione dignum (Danice: gaber). Þetta orð sagði Þórdís Jónsdóttir, að Sölvör Vigfúsdóttir hefði brúkað«. Að þetta eigi við full rök að styðjast er óefað. Þetta og annað eins hef- ur kent mjer að vera varkárum.1 En það er öðru máli að gegna um orð, sem eru nöfn á sjerstökum hlutum, gripum, amboðum eða þjóðlitseinkennum; 1) Að þessu leyti erum við BMÓ hjer um bil samdóma (smbr. bans orð s. 35—6). Að bann gerir mjer ástæðulausa getsök (bls. 36) er af því sem hjer er sagt ljóst.

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.