Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 1895, Side 91

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 1895, Side 91
91 ■unnið, og má í þvi nokkuð satt vera, þótt hcinn hafi aukið, og það annað, að Ari haíi tekið herfáng alt, •en bændur ei af haft nema það er lítt nýtt var af klæðaslitrum þeirra; er það og líklegt, því Ari hefir metið konúngi féð, enn þótt ei hafi sem fylzt verið útgoldið. En margt er í sögn Jóns, er hann hefir logið með öllu; var það helzt að hann kvað þá sak- lausa hafa drepna verið, og prest einn þar vestra, Jón Grímsson, nálega hafa tekið af þeim óviijugum hvað er hann vildi og Ara vera hið mesta illmenni annað en þann prest og hinn fjölkunnugasta mann«. (Arb. V, hls. 136—137). Og skömmu áður segir Jón Espólin: »Taldi hann (þ. e. Jón lærði) kýngiveður hafa brotið skip þeirra«. Jón sýslumaður fer hér mjög óráðvandlega með frásögn nafna síns. Jón lærði segir hvergi að Ari bóndi hafi tékið (þ. e. dregið undir sig) allar eigur Spánverja þeirra sem drepnir voru, heldur að eins að þær hafi verið fluttar heim í Ögur. En líklegt •er, eins og Jón Espólín segir — Jón lærði leyfir sér ekki að segja neitt í þá átt — að »féð hafi ei verið sem fylzt útgoldið«, því Ari bóndi þótti fégjarn og harðdrægur, eins cg margir höfðíngjar í þá daga. »Ari varð oddviti fyrir drápi Gasgóna á Vestfjörðum 1615«, stendur i Sýslumannaæfum Boga Benidikts- sonar, »og er mælt að hann hafi haft sinn fullan hluta af fé þeirra, sem annarsstaðar þar sem hann kom því við«. (Sm.æfir II, bls. 83). Jón lærði segir hvergi, að allir Spánverjar hafi verið drepnir sak- lausir. Hann tekur einmitt fram, að sumir þeirra hafi farið með gripdeildir og aðra ósvifni og þeir áttu því refsíngu skilið, ekki líflát, en t. d. hýðíngu. Hinir, sem ekkert ilt höfðu unnið, voru drepnir sak- lausir, og er undarlegt að Jón Espólín, sem var

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.