Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1906, Page 4

Eimreiðin - 01.01.1906, Page 4
4 sí’ín aðferð stenzt, þinn alda-fjöldi eigi! Á fáum árum fjallið gegn má rjúfa, Sem fljótið var í alda-tal að kljúfa.« Því vitran sú, sem goðasagnir geyma, Og guðsdýrð öll og frambúð sælu-heima, Er mannkyns-viljinn — menning sína' að dreyma. VII. Pér Norðmenn, þiggið ósk frá yður smærri — Frá íslendingi, þó hann standi fjærri — Og minnist þess, að forðum stórum fregnum, Sem frændsemd snerti, var ei undra-megn um Að þjóta’ í skálm á skálabúa-veggnum. Við hörpu Islands hnýttur sérhver strengur Fær hljóm-titring, ef skrugga’ um Noreg gengur, Pað snertir innar ætta-tali’ í sögum, Sem ómur væri’ af sjálfra okkar högum Og ættum bæ og börn í Prænda-lögum. VIII. Pér Noregs skáld, sem okkur örfun senduð, Sem á því sjálfir nokkrum sinnum kenduð, Að sitja’ í krók með bundinn hug og hendur, Er heima-bygð manns öll í loga stendur, í áheyrn dóms um okkar vænta’ og liðna, Hvað ætti’ að brenna’ og hvað nú mætti sviðna! Hjá sveit, er veit sig minst við málið riðna, Sem á ei heim né heima-land í geði, Né hugsjón til, er staðið geti’ í veði — Þér gömlu farmenn! land í lýsing sjáið, Pað land, þá bygð, það aldarfar, sem þráið. Og er það ekki sælt, að ganga’ að sofa Með sýnina þá, er vöku-nætur rofaf

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.