Eimreiðin - 01.01.1906, Síða 4
4
sí’ín aðferð stenzt, þinn alda-fjöldi eigi!
Á fáum árum fjallið gegn má rjúfa,
Sem fljótið var í alda-tal að kljúfa.«
Því vitran sú, sem goðasagnir geyma,
Og guðsdýrð öll og frambúð sælu-heima,
Er mannkyns-viljinn — menning sína' að dreyma.
VII.
Pér Norðmenn, þiggið ósk frá yður smærri —
Frá íslendingi, þó hann standi fjærri —
Og minnist þess, að forðum stórum fregnum,
Sem frændsemd snerti, var ei undra-megn um
Að þjóta’ í skálm á skálabúa-veggnum.
Við hörpu Islands hnýttur sérhver strengur
Fær hljóm-titring, ef skrugga’ um Noreg gengur,
Pað snertir innar ætta-tali’ í sögum,
Sem ómur væri’ af sjálfra okkar högum
Og ættum bæ og börn í Prænda-lögum.
VIII.
Pér Noregs skáld, sem okkur örfun senduð,
Sem á því sjálfir nokkrum sinnum kenduð,
Að sitja’ í krók með bundinn hug og hendur,
Er heima-bygð manns öll í loga stendur,
í áheyrn dóms um okkar vænta’ og liðna,
Hvað ætti’ að brenna’ og hvað nú mætti sviðna!
Hjá sveit, er veit sig minst við málið riðna,
Sem á ei heim né heima-land í geði,
Né hugsjón til, er staðið geti’ í veði —
Þér gömlu farmenn! land í lýsing sjáið,
Pað land, þá bygð, það aldarfar, sem þráið.
Og er það ekki sælt, að ganga’ að sofa
Með sýnina þá, er vöku-nætur rofaf