Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1906, Síða 12

Eimreiðin - 01.01.1906, Síða 12
12 Hann sagðist skyldi standa upp af sinni jörð fyrir hinum og þessum bónda, ef hann vildi fara vestur! Margir góðir bændur fóru fyrir orð þessa manns og urðu þeir fyrir miklum vonbrigðum; því að Sigurður settist sjálfur að jörð sinni og lét hvern sjá ráð fyrir sér. Vera kann að þessir menn hafi komið fótum fyrir sig síðar og víst vildi ég að þeim liði vel. Eg nefndi áður sparsemi gömlu bændanna og var það gert til samanburðar. Nú kem ég að bændunum, sem eru miðaldra menn. Peir eru ekki eins og Halldór gamli á Bjarnastöðum, að þeir hiki við að hleypa sér í skuldir fyrir spýtur í lítinn kofa, eða eins og Jón gamli í Tungu, sem dró af sér ketbitann, þegar gestur kom í matinn. Nú eru tekin lán og alt veðsett, sem hægt er. Fyrst vóru jarðirnar »settar í bankann« með fyrsta veðrétti, svo með öðrum veðrétti. Og nú eru menn farnir að veðsetja hver annan. Eg er veðsettur náunganum og náunginn er veðsettur mér. E!g á hér við félagslánin, þegar hver ábyrgist fyrir annan í félagi. — Gömlu mennirnir hrista höfuð sín »á þessu stigi málsins.« Ein ef til vill fer þetta vel að lokum, þótt út af kunni að bregða. Og alt er betra en sveitarhjálpin og kaupstaðalánin, sem áður tíðkuðust. »Straumur tímans« er nú kominn í þann farveg, að almenn- ingur getur ekki beðið eftir því, að fé safnist fyrir með »tíð og tíma« í sjóvetling og handraða. Menn vilja lifa góðu lífi. Og ef fé er ekki fyrir hendi til þess, þá eru tekin lán, fyrir mat í munn- inn og þak yfir höfuðið. Réttardagurinn. Sá sem vildi koma í Tingeyjarsýslu og ætti þann eina kost að dvelja þar einn dag æfi sinnar, og ef hann vildi sjá ranghverfu hliðina á lífi sýslubúa, — þá ætti sá maður að vera á Hraunsrétt. Sú rétt er stærst í allri sýslunni og þótt víðar sé leitað. Par kemur saman fé úr 5 hreppum og fjöldi manna og er þessi dagur einhver mesti sæludagur ársins. Tá er heyverkum lokið ýmist alveg eða því sem næst, og því fagna allir menn, sem hlut eiga að máli, hvort sem hey- skapurinn hefir gengið vel eða illa. Hafi hann verið góður og gagnssamur, þá er gott heilum vagni heim að aka. En ef hann hefir illa gengið, þá er illu bezt af lokið.

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.