Eimreiðin - 01.01.1906, Page 27
27
enda er svo að sjá í árbókum og annálum, að hér hafi mannfellir
fyrst orðið, þegar harðindatíð svarf að landi og lýð.
Hér er við margt og mikið að berjast. En hér eru einnig
æðimargir menn, sem taka hraustlega móti og eru einráðnir í
því að hopa hvergi, meðan stætt er.
Ritað í október iqoj.
Bágborin bók um ísland.
Á seinni árum hafa mörg góð fræðirit og ritgjörðir um ísland
og íslendinga verið prentuð á útlendum málum, sum fyrir tilstilli
íslendinga sjálfra, sum hafa útlendingar, einkum Pjóðverjar ritað.
í landfræðis-handbókum og almennum fræðasyrpum er nú hægt að
fá rétta vitneskju um land og þjóð, en samt koma þó árlega út
erlendis rammvitlausar ferðabækur um ísland og fjöldi af lélegum
blaðagreinum, sem eru fullar af rangfærslum og misskilningi.
Sumt af þessu dóti er svo úr garði gert, að ætla mætti að höfund-
arnir hefðu eingöngu haft fyrir sér rit eftir Blefkenius og aðra
stórbjána frá 16. öld. Pessi ritsmíði eru vanalega eftir hálf-
mentaða ferðalanga og blaðsnápa, sem ekki nenna að hafa fyrir
því að lesa fræðibækur, aldrei eru vanir að gagnskoða nokkurn
hlut, leggjast aldrei djúpt, en busla bara á yfirborðinu, rubba upp
sönnu og lognu, sem þeir halda að lesendurnir hlæi að og blaðra
eitthvað þindarlaust út í bláinn. Petta »bókmentalega« hundasund
erum vér Islendingar sjálfir annars á seinni árum furðanlega farnir
að læra. Svona löguð rit um ísland gjöra þó lítinn skaða í sjálfu
sér, almenningur, sem les, gleymir þeim jafnóðum, en vísindamenn
og fræðimenn þekkja þess konar höfunda of vel, til þess að leggja
trúnað á ritgjörðir þeirra. Hættuleg eru þau rit, sem koma fram
á sjónarsviðið í vísindalegu gerfi, en eru þó í rauninni ekki nema
kák, rangfærslur og misskilningur. Af þessu tægi er bók eftir
Nelson Annandale um Færeyjar og ísland,1) sem nýlega er
*) Nelson Annandale: The Faroes and Iceland: Studies in Island Life. With
24 Illustrations and an appendix on the celtic pony by F. H. A. Marshall, D. Sc. Ox-
ford. Clarendon Press. 1905, VIII-[-238 bls. 8vo.