Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1906, Síða 28

Eimreiðin - 01.01.1906, Síða 28
28 út komin, og er rétt að íslendingar fái að vita, hvernig þessum herra þóknast að líta á þjóðlífið íslenzka og allar framfarirnar. Mr. Annandale á víst að heita vísindamaður og er að min- sta kosti formaður fyrir þjóðsafni í Kalkútta á Indlandi; það sést líka á bókinni, að hann hefir fengið nokkra vísindalega mentun í ýmsum greinum náttúrufræðinnar, og svo er bókin gefin út af Clarendon Press í Oxford og tileinkuð vísindamanni, prófessor dr. E. B. T y 1 o r, sem hefir lesið handritið og stungið upp á nokk- rum leiðréttingum. Bók þessi er eiginlega engin ferðasaga heldur samsafn ritgjörða um þjóðlíf og náttúru Færeyja og íslands, og hafa þær áður verið prentaðar í enskum tímaritum. Höf. kom oft til Færeyja á árunum 1896 til 1903 og er þar allkunnugur; lýsing hans á Færeyjum og Færeyingum er líka hið langbezta í bókinni, þó stöku gallar séu innan um. Honum hafa fallið Færey- ingar vel í geð og segir hann þá að öllu leyti standa miklu framar en íslendinga; þó má varla telja það mikið hrós, því íslendingar eru að áliti höf. úrþvættis þjóð, sem alveg er að kafna í óþrifnaði og drykkjuskap, þeir eru eftir skoðun hans á afturfararbraut í öllum greinum, en ætla þó að rifna af gorgeir, sjálfhælni og kotungslegu þjóðardrambi. Árið 1898 dvaldi höf. 6 vikur í Vest- manneyjum, lýsir allýtarlega fuglaveiðum eyjarskeggja og segir frá Tyrkjaráni. Til Vestmanneyinga hefir höf. heldur hlýjan hug og telur þá mesta þrifnaðarmenn og snyrtimenn af íslendingum og hýbýlaprúðasta, enda lýsir hann allýtarlega bústöðum þeirra (bls 139). Sérstaklega tekur hann fram, að steingarðar og hús á Vestmanneyjum séu vanalega prýdd með þorskhausum og fýlunga- hryggjum, sem hanga á strengjum eins og blómsvegir fram með veggjunum. Á kvöldin senda þessar þorskhausafestar frá sér dularfullan maurildis-bjarma, sem stundum verður svo mikill, að hann uppljómar þorpið. Timburhús með þakjárni þykja svo vegleg, að þeim hafa verið gefin nöfn eftir stórbæjum Evrópu og heita París, London, Helsingeyri o. s. frv. Um meginland Islands virðist höf. ekki hafa farið, hann brá sér aðeins frá Vestmanneyjum til lands í Rangárvallasýslu, líklega upp í Landeyjar eða Pykkvabæ og þaðan fór hann svo til Reykjavíkur. Á því, sem hann sá á þessari ferð, byggir hann svo þjóðlýsingu sína á öllum íslending- um og fetar þar í fótspor dr. Ehlers, sællar minningar, sem ein- mitt bygði sínar frægu lýsingar á heimilisháttum íslendinga á rann- sóknum sínum í Holtum og Eykkvabæ. Mr. Annandale hefir

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.