Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1906, Side 32

Eimreiðin - 01.01.1906, Side 32
32 Skólum hefir fjölgað á íslandi í seinni tíð og segir höf., að þeir hafi orðið til mikillar óblessunar fyrir landið. Fjöldi unglinga streymir að skólunum á vetrum úr fjarlægum héruðum, þeir hafa hvergi höfði sínu að að halla og lenda í slarki og fylliríi; svo útbreiðist drykkjuskapurinn um landið frá þeim. Höf. segir, að Frelsisherinn megi sín mikils á íslandi og herinn hafi með tilstyrk Templara barist harðlega gegn drykkjuskap og hörð lög hafi verið gefin út mót hinum sama ófögnuði, en alt er þetta árangurslaust. Nú segir hann að Magnús frá Cambridge sé búinn að hefja krossferð til útbreiðslu aflrauna og leikfimi meðal ungra manna, og segist höf. hafa meiri trú á að slíkt hefti drykkju- skapinn heldur en trúfræði og lagabönn. »Á íslandi er það tízka, að trúa engu eða réttara sagt líta með vantrú á alla hluti, nema mikilleika Islands og dygðir; já, vissulega hinir bezt mentuðu Is- lendingar tala jafnvel um sjálfa þjóðræknina með nokkrum fyrir- litningar-keim. Trúræknin virðist alveg horfin og opinberlega er hæðst að hindurvitnum og hjátrú, þó menn í laumi ali hana í brjósti sér og hafi innilegar mætur á henni. Ekkert sýnir trúar- ástandið betur heldur en kirkjurnar; prestarnir nota þær fyrir skemmur; óhreinni ull er hlaðið upp í hornunum og jafnvel upp í kirkjustólana og á endastólpana hengja menn föt sín; tóm bjór- flaska með kerti upp úr stútnum stendur annaðhvort á altarinu eða í gluggakistu, oft við hliðina á skrautlegum gömlum kopar- stjökum, á loftsvölunum er »þvotta-rúlla« og hrúga af óhreinum rekkjuvoðum. Á sunnudögum er ruslinu fljótlega kastað til hliðar, svo söfnuðurinn komist fyrir; í kirkju kemur því nær eingöngu kvennfólk, þar hefir það eina tækifærið til þess að hitta nábúa sína. Áður voru kirkjurnar notaðar sem svefnherbergi fyrir ferðamenn, en nokkrir enskir túristar, sem höfðu skilið eftir velsæmið heima, t'undu upp á því að slökkva ljós, sem þeir höfðu sett á altarið, með því að kasta í það skónum sínum og skemdu altaristöfluna*. þegar biskup frétti þetta, bannaði hann að nota kirkjur fyrir gististaði; þó er því banni ekki alstaðar hlýtt. Höf. getur þess ennfremur, að orsökin til kristindómshnignunar á íslandi muni meðfram vera hin vondu lífskjör prestanna og segir hann, að sumir þeirra hafi ekki nema f 5—6 í laun (90—108 krónur); þeir verða því allir að búa sem bændur og þeir prestar, sem ekki vinna líkamlega vinnu, eru fyrirlitnir (bls. 154—56). Höf. segir á bls. 132—133: »Alþektur blaðamaður og lög-

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.