Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1906, Síða 46

Eimreiðin - 01.01.1906, Síða 46
46 margrengdu þessa sögusögn hans, en hann tók því öllu méð góðu. Svo fór hann að lýsa fjárhópnum. Par hafði verið flekkóttur haustgeldingur og tveir hrútar, annar grár, en hinn bíldóttur, tvær mórauðar dilkær o. s. frv., unz það fóru alvarlega að renna tvær grímur á leitarmennina. l’eir fóru nú enn á ný að bera saman ráð sín. Nú var komið niðamyrkur og ekki álitlegt til árangurs að leggja fram á heiðar á ný til fjárleita. Par að auki voru þeir enn þá efasamir um það, hvort þeir ættu að trúa Friðrik. Peir horfðu hvast á Búrfellið, sem nú stóð eins og geysimikið skuggatröll og bar við heiðan næturhimininn. Hvítir dílar sáust vestan í fjallinu hér og þar, en það var ómögulegt að sjá, hvort það voru skepnur eða fannir. Og 50 fjár í einum hóp — nei, það var sannarlega of mikið til að láta verða eftir í Búrfellsheiðinni. Peir gátu ímyndað sér, hvað þeir mundu fá að heyra eftir á fyrir annað eins tiltæki. Og 50 fjár — það var nálega eins mikið eins og þeir höfðu fundið allir til samans um daginn. Og morguns máttu þeir ekki bíða vegna réttanna. Peir urðu því að fara strax um nóttina. Friðrik stóð enn sem fyr glottandi yfir hreindýrinu, meðan þeir réðu ráðum sínum, og lagði ekkert til málanna. Pað var stungið upp á því, að þeir tækju hann með sér, en svo hurfu þeir frá því aftur. Peim kom saman um, að hann mundi ekki verða sér til annars en tafar. Peir létu hann því skýra sér nákvæmlega frá, hvar hann hefði skilið við fjárhópinn og hótuðu honum öllu illu, ef þetta reyndist ósatt. Svo þrömmuðu þeir af stað allir fjórir. En áður en þeir fóru, gaf einn þeirra Friðrik það heillaráð, að hann skyldi spretta upp kviðnum á dýrinu og taka úr því inn- ýflin, svo það yrði léttara. Og Friðrik félst á það.--------- Peir komu ekki ofan að kofanum fyr en um morguninn um um fótaferðatíma. Hefði Friðrik verið þar þá, þá hefðu þeir að líkindum lúbarið hann; svo voru þeir reiðir. Peir höfðu gengið alla nóttina, gengið upp og ofan Búrfellið og leitað alstaðar, þar sem þeim datt í hug, en enga einustu kind fundið. Aftur á móti höfðu þeir gengið fram á hóp af ljónstyggum hreindýrum. En Friðrik hafði ekki komið að kofanum um nóttina. Pegar hann var búinn að létta dýrsskrokkinn, hafði hann lagt hann á bakið og labbað með hann — heim til sín. Hann kom heim til sín snemma daginn eftir.

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.