Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1906, Page 47

Eimreiðin - 01.01.1906, Page 47
47 Seinna játaði hann fyrir húsbónda sínum, að sagan um þessar 50 kindur hefði auðvitað verið haugalygi. En hann hefði mátt til að koma hinum leitarmönnum af sér, því hann var hræddur um, að þeir mundu heimta hlut í dýrinu, ef þeir hjálpuðu sér með það til bygða. Um hinn hluta sögunnar var hann altaf sjálfum sér sam- kvæmur. Hafi enginn annar trúað henni, þá hefir hann þó að minsta kosti gert það sjálfur. Dagur og nótt. En hvað hann var langur þessi dagur; ekki sýnilegt að hann myndi nokkurn tíma líða. Og þreytandi var hann líka; vellandi hiti og brakandi töðuþurkur. Enginn fann þó betur hvað dagurinn var langur, en Sigrún, heimasætan á Hjalla, þar sem hún var að snúa í flekkjunum úti á vellinum. Hún var altaf að horfa á sólina, og hún gat engan mun séð á því, að hún hreyfðist nokkuð. Öðruhvoru spurði hún hvað klukkan væri, og það var eins — hún komst ekkert áfram, stóð við í hverju spori. Hún var eitthvað óróleg, að fólkið sagði, og jafnvel móðir hennar hafði orð á því, að hún myndi ekki vera frísk! En hún var ekki lasin. Hún hnepti frá sér léreftstreyjunni og lofaði svit- anum að gufa út frá brjóstinu, svo tók hún skýluklútinn og fleygði honum á eina þúfuna, en ljósguli haddurinn hennar féll í tveimur löngum, þykkum fléttum niður um herðarnar og bakið. Og svo keptist hún við að taka saman heyið, að orð féllu um það, að hún hefði aldrei hamast eins mikið. En alt kom fyrir sama; sólin var á sama stað og sendi brennandi nóngeislana niður; klukkan þokaðist ekkert áfram og dagurinn lá þar í flekknum og var auðsjáanlega ánægður yfir því, að mega flatmaga sig þar. Hann hafði engar sýnilegar áhyggjur; hafði komið hita sínum og þunga á þessi veikbygðu mannabörn. Og hlæjandi og ertandi horfði dagurinn á þessa aumingja, þar

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.