Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1906, Blaðsíða 53

Eimreiðin - 01.01.1906, Blaðsíða 53
53 byrja, eða þá þau hvort í sínu lagi væru að leita að orðunum, sem við ættu. Loks rauf hún þögnina, þrýsti sér fastara að brjósti hans og tók heljartökum um hálsinn. »Sveinn, elsku bezti! Ég get ekki hugsað til þess, að þú farir! fú mátt það ekki — mátt ekki fara frá mér, elsku góði!« Og tárin brennandi, en brimsölt runnu niður kinnar henni. »Elsku Rúna mín! Elsku bezta og einasta vinan mín, vertu róleg! Ég skal aldrei gleyma þér; hvað lengi sem ég verð í burtu skal ég altaf hugsa um þig. En ég verð að fara; það er búið að búa svo um hnútana, að ég get ekki snúið aftur.« »Svo-o, en þú getur ekki trúað, hvað mig tekur sárt að sjá af þér. — Æ, mér finst þessi tími muni aldrei líða.« »Jú, hann líður, ef við verðum róleg; við erum engin börn lengur, og þess vegna ber oss að vera þolinmóð.« »Og þú ætlar altaf að muna eftir mér? Aldrei að gleyma að hugsa um mig?« »Nei, ekki einu sinni. Ég veit mér verður ljúft að minnast þín og allra þeirra sælustunda, er þú hefir búið mér, þegar ég dvel svo fjarri þér, að mér getur ekki komið til hugar að gleyma þér; það verða altaf einhverjar minningar, sem minna á þig, því máttu trúa.« Svo tók hann fastara utan um mitti hennar, beygði sig ofan yfir hana og þrýsti brennheitum kossi á varir hennar. »Og svo verðurðu að muna eftir að skrifa mér — mörg, löng bréf, annars leiðist mér svo mikið.« Já, hvort hann ætlaði ekki að skrifa henni! Með hverri ein- ustu ferð, sem félli, og æfinlega löng bréf; nóg væri bréfsefnið í höfuðstaðnum. En svo varð hún að skrifa líka, og því lofaði hún. Svo kvöddust þau, og þá grétu þau bæði langa stund. Éeim var ljóst hvað skilnaður þessi var sár og; gekk nærri hjörtum þeirra — að fá ekki að sjást né talast við í þrjú ár — að dagar þeir og ár myndu verða óumræðilega kaldir, langir og leiðinlegir. Og alt þetta hvíldi eins og farg yfir hugsunum þeirra meðan gráturinn var að jafna misfellurnar og gera hugsanirnar sjálfstæðar. Svo skildu þau og héldu heim hvort í sínu lagi. Hún gat ekki sofnað einn einasta dúr um nóttina. Hún var altaf að hugsa um burtför Sveins og veru hans í Reykjavík. Ef hann nú sæi fallegri stúlku og betur búna en hana í höfuð-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.