Eimreiðin - 01.01.1906, Blaðsíða 64
64
ýkjum og rangfærslum, einkum að því er snertir embættiskostnað
Dana og Færeyinga og samanburð á honum og embættisgjöldum
vorum, eins og ég bráðum skal sýna.
Hins vegar hefir hann ekki getað komið ýkjunum eins mikið
við, þegar um embættisgjöld íslendinga var að ræða, því þá var
um að gera að láta þau sýnast sem minst. En þá er þeirri að-
ferðinni beitt, að reyna að rugla lesendurna ýmist með óviðkom-
andi athugasemdum eða með því, að raða tölunum á annan hátt,
en ég hefi gert, draga frá á einum stað og leggja við á öðrum,
og koma þessu svo fyrir, að þeim, sem ekki nenna að hafa fyrir
að bera þetta saman við mína ritgerð, geti sýnst, að þar hafi verið
eitthvað rangt eða miður nákvæmt.
það mætti æra óstöðugan að elta ólar við allar rangfærslur
og útúrsnúninga prófessorsins, enda tæki það upp meira rúm en
Eimr. má missa frá öðru þarfara. En nokkur skil verð ég þó að
gera honum, til þess að sýna, hve mikið er að marka það, sem
hann segir.
Hann byrjar þá með því að staðhæfa, að laun allra starfs-
manna, sem launaðir eru af landssjóði, beri ekki að telja til em-
bættisgjalda. Þannig séu t. d. laun verkfræðings landsins ekki
annað en útgjöld til vega og samgöngubóta á landi, og laun vita-
varða gjöld til samgöngubóta á sjó. Er hún ekki sláandi sönn-
unin sú arna! Jú svo sláandi, að engum dettur í hug að neita,
að þetta sé rétt. En það er aðeins sá hængur á, að með líku
móti mætti sanna hið sama um laun hér um bil allra annarra
embættismanna. Eins og laun póstmeistarans séu nokkuð annað
en útgjöld til póstmála (d: samgöngubóta), eða kennaranna við
latínuskólann annað en útgjöld til skólamála, eða dómaranna
annað en útgjöld til dómsmála. Væri upptalningunni haldið áfram
á þessa leið, yrði það líklega ekki ýkjamikið, sem telja mætti til
embættiskostnaðar.
Þá segir höf., að ég gleymi að geta þess, að því er vita-
vörzluna snertir, að vitagjald skipa geri betur en borga allan
kostnað til vita. O, sussu nei, herra prófessor! Þetta var ekki
af gleymsku, heldur beint af því, að ég fann enga ástæðu til að
vera að fimbulfamba um það, sem kom málinu enga vitund við.
Eg var aðeins að sýna, h v e r embættisgjöldin væru, en ekki
hvernig það og það embætti borgaði sig. Ef ég hefði látið í
ljósi að launin til vitavarða væru óþörf eða þeim illa varið, þá