Eimreiðin - 01.01.1906, Page 65
65
hefði verið sök sér, þótt mér hefði verið svarað með slíkri athuga-
semd, en nú er hún út í bláinn.
Pá komum við til flokkanna og athugasemdanna við þá.
I. Laun embœttismanna, greidd. úr landssjóði.
Þar hefir höf. rétt að mæla, að laun landritara og 3 skrif-
stofústjóra eigi að vera 16,500 kr., en ekki 16,000 kr., eins og
stendur í ritgerð minni, annaðhvort fyrir vangá eða mislestur í
prentuninni. En ekki verður sú leiðrétting til að minka embættis-
gjöldin. Hinsvegar nær það engri átt, er höf. vill ekki telja toll-
heimtulaun sýslumanna til embættisgjalda, af því að tollheimtunni
fylgi mikil peningaábyrgð. Sama er að segja, þar sem prófessor-
inn vill draga 3,500 kr. frá 11. tölulið hjá mér (»Landssjóðstillag
til prestastéttarinnar«), og bæta þeim við á öðrum stað, af því að
þessi upphæð gangi »til viðbótar eftirlaunum presta og prests-
ekkna«, en ekki til launa presta. Petta er ekkert annað en útúr-
snúningur og tilraun til að villa mönnum sjónir. Eg hefi sagt, að
hið nefnda landssjóðstillag (19,100 kr.) gengi til prestastéttar-
innar, og það gerir það jafnt fyrir því, þótt nokkur hluti þess
gangi til uppgjafapresta og prestsekkna.
II. Gjöld við embættisrekstur, greidd úr landssjóði.
Par vill próf. álíta oftalið hjá mér »endurgjald fyrir burðar-
eyri embættismanna*, af því að þessu fé sé varið til að kaupa
frímerki og renni því aftur í landssjóð. En ætli frímerkin yrðu ekki
keypt alveg eins, þótt embættismennirnir fengju ekki þetta endur-
gjald fyrir þau. Jú, sannarlega. En munurinn væri aðeins sá, að
þá yrðu embættismennirnir eins og hver annar að borga frí-
merkin úr eigin vasa, í stað þess að nú borgar landssjóður þau.
það mætti alveg með sama rétti draga alt það frá embættisgjöld-
unum, sem embættismenn borga í skatt til landssjóðs, af því að
þeir peningar renna líka aftur inn í hann, alveg eins og burðar-
eyririnn.
Sama tilraun til að villa kemur fram þar sem próf. fræðir oss
um, að aukakostnaðurinn við yfirréttinn gangi ekki til embættis-
m a n n a, heldur til sendiboða, eldiviðar og viðhalds. Hvar hefi ég
sagt, að þetta fé gengi til »embættismanna« ? Eg hefi tilfært það
sem tölul. 10 undir »gjöld við embættisrekstur« og kallað það
»aukakostnað«. Er það ekki fullskýrt? Hvað eiga þá slíkir útúr-
5