Eimreiðin - 01.01.1906, Síða 66
66
snútiingar að þýða, þar sem alt er svo hárrétt, að við engu verður
haggað ?
III. Laun opinberra starfswianna, greidd úr /andssjóði
Pessurn flokki (81,456 kr.) vill próf. alveg sleppa sem óvið-
komandi embættiskostnaði, af því þessir menn geti ekki með réttu
talist embættismenn. En þó þeir heiti ekki svo á lagamáli, þá
eru þeir það samt í raun og veru og eru svo kallaðir í daglegu
tali í öllum löndum. Pað er heldur ekki nema á íslandi, sem
próf. vill sleppa þessum gjöldum í yfirliti yfir embættiskostnaðinn.
Pegar til Danmerkur kemur, þá er sjálfsagt að telja laun allra
opinberra starfsmanna með embættiskostnaðinum og bera hann
svo saman við embættiskostnaðinn íslenzka að frádregnum
öllum starfsmannalaunum. Ekki vantar samkvæmnina! Og
ekki nóg með það, að allir sams konar starfsmenn (t. d. póst-
menn) og til eru á íslandi séu þar taldir með, heldur líka allir
starfsmenn við járnbrautir ríkisins og ritsímana. Pað átti líka svo
vel við, af því að svo mikið er um járnbrautir og ritsíma á íslandi
til samanburðar! Og hver áhrif þetta muni hafa á samanburðinn,
má bezt ráða af því, að laun starfsmanna og embættismanna (sem
eru nauðafáir, flestir starfsmenn) við járnbrautir Dana, póstmál og
ritsíma nema 17'/2 milj. kr. Pegar nú svona samvizkusamlega er
að farið: öllum starfsmönnum slept íslands megin, en þeir allir
teknir með Dana megin og þar ofan á hrúgað feikn af starfs-
mönnum, sem ekki eru til á íslandi, þá er nú engin furða þó að
vogarskálin hallist frá réttu lagi í samanburðinum!
IV. Uppeldiskostnaður embœttismanna (ekki dður talinn).
Hér reynir próf. enn að rugla lesendurna með því, að breyta
um röðina á tölum mínum og flytja þær til. En finnur þó í raun-
inni ekkert oftalið hjá mér. Hann vill reyndar sleppa 400 kr.
fyrir leigulausan bústað rektors í latínuskólanum, en slíkt nær
engri átt, þar sem laun rektors eru lögákveðin 4000 kr., sem
hann getur eftir eigin geðþótta fengið greidd hvort sem hann
heldur vill með þeirri upphæð eða með 3,600 kr. og leigulausum
bústað. Pá vill hann og sleppa styrk til dýralæknaefna og nokkru
af gjöldum til lærða skólans, en slíkt kemur ekki til nokkurra mála.
En þegar hann síðar kemur til Danmerkur, þá telur hann með
uppeldiskostnaði embættismanna allan styrk til gagnfræðaskólanna,