Eimreiðin - 01.01.1906, Page 74
74
og láta hann svo aftur myndast og vaxa fram á nokkrum árum. W. v. Knebel
hefir nii heldur ekki staðist þessar freistingar. Hann þykist hafa komist að þeirri
niðurstöðu, að reyndar séu ágizkanir Helga skakkar, hann hafi eigi litið rétt á, en
sjálfur hefir Knebel gert þá miklu uppgötvun, að jökulöldur, sem liggja hver við
hliðina á annarri, ísrákir á dalabotnum o. fl., séu sönnun fyrir millijöklatímabilum, að
minsta kosti þrem. Hér er ekki hægt að rekja sannana-tilraunir þessar, ég mun gera
það annarstaðar, en mér finst þær mjög léttar á metunum og sumar jafnvel afleitar;
skárra er það, sem Helgi segir, þó ég sé því heldur ekki samþykkur. Ef þessi
málefni eru skoðuð frá sjónarhæð, virðast mjög litlar líkur til þess, að jöklar á ísöld
hafi með köflum bráðnað af öllu eða mestöllu íslandi; mér íinst það blátt áfram
fjarstæða að hugsa sér slíkt. Á ísöldu hlýtur loftslag norðan til í Atlantshafi að
hafa verið mjög hráslagalegt og sjórinn fullur af jökum. í Noregi hafa engar leifar
millitímabila fundist, í Suður-Svíaríki og Danmörku aðeins vafasamar menjar. Hafi
nú ekki jökull bráðnað fullkomlega af þessum löndum, er það næsta ólíklegt, að
allur ís hafi horfið af íslandi. P. Th.
UM HANSAVERZLUN Á ÍSLANDl. í 7. bindinu af hinum svonefndu Hansa-
skrám (Hanserecesseý, sem nýlega er út komið og sem nær yfir tímabilið frá 1477
—1530, er allvíða minst á ísland. Frá verzlunarskrifstofunni í Björgvin koma sífeldar
kvartanir um ferðir Hamborgara og Brimara til íslands (sbr. ÍU Thoroddsen: Land-
fræðis. ísl. I, 104, 129). Kaupmennirnir í Björgvin eru hreint og beint hræddir um,
að verzlunarskrifstofan fari á höfuðið, ef ekki séu reistar skorður við samkepni í fisk-
verzluninni frá íslandi. í*eir heimta, að skip þau, er komi frá íslandi, haldi beina
leið til enskra hafna, en selji ekki farma sína í þýzkum Hansahöfnum. En Ham-
borgurum verður aldrei skotaskuld úr því, að finna upp á einhvcrjum undanbrögðum
á Hansaþinginu. Þannig halda þeir því einu sinni fram, að bannið gegn því, að
selja fisk, er kæmi frá íslandi, í Hamborg, hafi leitt til uppreistar í borginni (nr. 197,
43- gr->-
Samkepnin milli enskra og þýzkra íslandsfara leiðir til mestu hryðjuverka.
1514 ráðast Englendingar á Cordt Trawendael, borgara í Hamborg, sem sigldi með
skreið frá Islandi til Hamborgar, og í þeirri árás er fjöldi Þjóðverja drepnir eða
særðir, skipstjórinn særður og honum varpað fyrir borð, lagt hald á skipið og farið
með það til Newcastle (nr. 110, 16. gr.). I einu skjali (nr. 455, 14. og 15. gr.),
sem áður er prentað hjá Schanz (í >Englische Handelspolitik gegen Ende des
Mittelalters« II, 450), eru kærur frá Englendingum yfir ÍÞjóðverjum. 1477 hefir skip
frá Hull (»The little Petre of Hul«) legið á Bátssandahöfn (Botssand) á íslandi.
Fyllast í^jóðverjar þá gremju yfir komu Englendinga og koma frá þeim stað, er á
alþýðumáli kallast Straumur (»a loco vulgariter dicto le Streymme*J1), taka skipið
hernámi, binda skipverja, 31 að tölu, við klettana og skjóta þá. í sama skjalinu
er í 14. gr. skýrt frá árás, er kaupmenn frá Hamborg hafi gert á skipshöfn á ensku
skipi við Bátssanda árið 1423. Er það tiltölulega gamalt eða snemmendis vitni um
ferðir Hamborgara til íslands. R. Meissner.
JACQUES JAEGER: DIE NORDISCHE ATLANTIS. Wien 1905.
Pessi ferðasaga er að mörgu leyti ofboð vitlaus, en ekki leiðinlega rituð. En
með því að skýrt hefir verið frá efni hennar í blaðinu Reykjavík, skulum vér ekki
^) Hér er auðsjáanlega átt við Straum eða Straumshöfn í Hraunum í Gull-
bringusýslu, er fyr meir var verzlunarstaður Þjóðverja (sbr. Dipl. Isl. V, 800 og
Kálund: Hist. topogr. Breskr. af Island II, 376 og 402). Ritstj.