Eimreiðin - 01.05.1908, Side 59
139
þegar ritað margar ritgerðir til að sýna vestræn áhrif á Norðurlönd
og frætt menn um margt og mikið, sem áður var í þoku eða
algerlega ókunnugt. En mest er þó vert um þá bók hans, er
hann ritaði til að vinna verðlaun Nansenssjóðsins, og hér er getið
í fyrirsögn þessara lína.
Par sem faðir hans S. Bugge hafði aðallega fengist við að
sanna vestræn áhrif á bókmentir og goðasagnir Norðurlandabúa
á víkingaöldinni (og próf. Taranger áhrifin á kirkjuna), þá hefir
prófessor Alexander Bugge í þessari bók tekið sér fyrir hendur
að sýna þessi áhrif í öðrum efnum. Hann leitast þar við að sýna,
að slík áhrif megi hvarvetna finna í lífi Norðurlandabúa. Pau
komi fram í þjóðfélagsskipun og stjórnarfari, hirðsiðum, skattálögum
og tollum, í vopnaburði, hernaðaraðferð o. fl. fau komi og fram
í landbúnaði og kvikfjárrækt; menn taki upp ný akuryrkjuverkfæri,
taki að rækta nýjar korntegundir og flytji inn nýja kynstofna til
peningsbóta. Hýbýli manna taki nýjum umbótum, einkum að því
er snertir hentugri og fegri húsbúnað. Bá taki og klæðnaður
manna miklum breytingum, ný snið, nýjar flíkur, ný efni, meira
litarskraut o. s. frv. Skrautlistin (útskurður, myndagerð o. s. frv.)
verður fyrir miklum og varanlegum áhrifum; nýjar útlendar fyrir-
myndir teknar upp og þær svo lagaðar og fullkomnaðar eftir því,
sem bezt á við heima fyrir. Verzlunin brýtur sér nýjar brautir
og innflutningur hefst á nýjum vörum, sem enginn þekti áður. Pá
taka menn og að byggja bæi (borgir) eftir útlendum fyrirmyndum.
Áhrifin koma fram bæði í góðu og illu. Menn verða heflaðri og
fágaðri, fá meiri og betri menningu, en jafnframt koma og upp
útlendir ósiðir og lestir, sem ekki vóru til áður. — Norðurlanda-
búar á io. öld vóru gagnólíkir forfeðrum sínum á 8. öldinni; þeir
litu öðrum augum á lífið, vóru búnir að fá nýjar þarfir og nýja
siði. Heimili þeirra vóru og orðin breytt og afstaða þeirra til
konungsins önnur, enda þá og komnir nýir hirðsiðir, nýtt hallar-
skraut o. s. frv. En þessar breytingar snerta þó ekki svo mjög
múginn, alþýðuna, heldur aðallega höfðingjana og hinar hærri
stéttir.
Mönnum kann nú að virðast það nokkuð ótrúlegt, að breyt-
ingar í lifnaðarháttum og hugsanalífi hafi getað orðið svo stór-
vægilegar, sem hér er haldið fram á rúmum ioo árum, þar sem
alment er álitið, að víkingarferðirnar vestur um haf hafi ekki byrjað
fyr en undir lok 8. aldar, enda hefir slíkum mótmælum óspart