Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1912, Qupperneq 23

Eimreiðin - 01.01.1912, Qupperneq 23
2 3 móti, að hún segir frá Hrúti Herjúlfssyni, vitrum manni og frækn- um. Pó var hann ekki einvaldur sjálfs sín; því að tvær konur vóru honum sín til hvorrar handar og festu hann í vondum netj- um. Gunnhildur kóngamóöir var önnur, en hin var Unnur Marðar- dóttir. — Eftir þá atburði, setn þessar konur ollu, hefst Njála sjálf, eða saga Njáls og sona hans og saga Gunnars að Hlíðar- enda. Sú saga er jafnframt saga Bergþóru og Hallgerðar. Berg- þóra fylgir Njáli eins og drotning fram í rauðan og logandi dauð- ann, þar sem hún legst niður undir uxafeldinn við hlið hans og brennur þar inni. Og Hallgerður fylgir Gunnari eins og skugga- norn, þangað til hún neitar honum um lokkinn, til að bæta með bogastrenginn. Og þá sagði Rannveig móðir Gunnars, að »þín skömm mun uppi verða meðan landið er bygt«. Himinn og jörð mun farast, en þau orð munu varla undir lok líða. — Loksins kemur Hildigunnur til sögunnar með blóðugu skikkjuna, sem hún steypir yfir Flosa með þeim storkunarorðum við frænda sinn um blóðhefndir, að hárin rísa enn þá á höfðum vorum við lesturinn. Og er þó iooo ára djúp nálega milli hennar og vor. Grímur Thomsen segir um Hildigunni: »NjáIs hún kveikti brennu bálið, Bergþóru sneið hún rauðan serk.« — Bjarnar saga Hítdælakappa orsakaðist öll af Oddnýju heit- mey hans, sem Pórður Kolbeinsson vélaði frá honum. Björn hlaut bana af þeim sökum. Kormákssaga er og saga Steingerðar ástmeyjar hans. Hún gengur aldrei úr huga hans. Hann yrkir um hana innan lands og utan, og seinast í andarslitrunum. Ástmeyjar Pormóðar Kolbrúnarskálds koma mikið við Fóst- bræðrasögu og nafn sitt fékk Pormóður af Kolbrún. Gunnlaugur ormstunga og Skáld-Hrafn deildu um Helgu fögru. Hún er rauða röndin í þeirri sögu og seinast börðust þeir um hana utanlands og féll þar hvor fyrir öðrum. Gunnlaugssaga ormstungu og Kormákssaga eru eldþrungnar ástasögur, svo að fáar eru þar fremri í ástamálum bókmentanna, fyr og síðar. Pessar sögur eru sannar. En þær eiga sammerkt við skáldsögur raunveruskáldanna að því leyti, að þær fara illa og skilja eftir opna und og sviðasár í hug og hjarta lesandans.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.