Eimreiðin - 01.01.1912, Blaðsíða 52
52
yfir Éyjafjörö sumariö 1907, Lagði hann af stað í sjóklæðum, en
tíndi smámsaman alt af sér á leiðinni og kom klæðlaus að landi.
Getum við hugsað okkur, hve snarar hreyfingar hefir þurft til að
losa hann úr þessum ham á sundinu, er við sjáum hann hér á
myndinni í sjóklæðunum, búinn til að leggjast frá landi. Við bíð-
urn með ó-
þreyjuhinu-
megin fjarð-
arins og sjá-
um ekki
annað en
smáskvett-
ur við og
við — nema
þeir, sem
hafa sjón-
auka, þeir
sjá höfuðið.
Smámsam-
an færist
hann svo
nær og eft-
ir 30 mín-
útur kemst
hann loks
að landi,
nokkuð
þreyttur.en
þó ekki
10. f’RÍR NORÐLENZKIR SUNDKAPPAR. þjakaður til
(1. Arngrímur Ólafssön 2. Kristján Í’orgilssoh. 3. Jóhann Ólafsson.) muna, þótt
straumur-
inn hefði verið erfiður. »Drengilega gert! Til hamingju með heit-
strenginguna!« hrópuðu vinirnir, sem biðu hans á ströndinni — og
það endurtökum við enn í dag.
Slík afrek sem þessi eru góð fyrirmynd fyrir æskulýðinn,
því þau verða til þess að glæða hjá honum kjark og áræði og
gefa unglingunum hvöt til að æfa sig, í von um að þeir kunni
máske að geta gert hið sama. Þess varð heldur ekki lengi að