Eimreiðin - 01.01.1912, Blaðsíða 39
39
mönnunum sjálfum á að æfa sig vel og standa sig sem bezt; því
þeir áttu von á glímumönnum að norðan, og var meira í mun,
að beltið yrði ekki dregið úr höndum þeim. Treystu Reykvíking-
ar »Ármenningutn« til að halda því í bænum, enda brugðust þeir
ekki trausti þeirra.
Pessi Islandsglíma var háð í Barnaskólaportinu í Reykjavík,
og tóku þátt í henni 3 Norðlendingar og 6 Sunnlendingar. Norð-
lendingarnir vóru: Kári Arngrímsson, Sigurður Sigurðsson og Eið-
urGuðmundsson, en
Sunnlendingarnir
vóru: Guðm. A. Ste-
fánsson, beltishafi,
Hallgr. Benedikts-
son, Sigurjón Pét-
ursson, Jón Vigfús-
son, Jónas Snæ-
björnsson og Sig-
valdi Sveinbjörns-
son. Fóru svo leik-
ar, að Sigurjón
Pétursson varðnú
hlutskarpastur og
vann beltið. Varð
gleði mikil hjá þing-
heimi yfir því, að
beltið varð kyrt í
Reykjavík, því þess
óskuðu allir, þótt
ekki væri allir á eitt
sáttir um það, hver
, 5. SIGURTON PETURSSON.
hljota mundi, og
vakti það nokkraj'undrun, er það varð hinn yngsti af keppinaut-
unum, er hnossið hlaut, og þótti þá sýnt, hver bezt hefði sig
undirbúið glímuna.
Sjötta Íslandsglíman var og háð í Reykjavík 16. júní 1911.
Sóttu hana enn 3 Norðlendingar, tveir hinir sömu og fyr, þeir
Kári og Eiður, en hinn þriðji var Jóhannes Laxdal, sem að margra
áliti var þeirra efnilegastur glímumaður. Þá glímu sótti og einn
Árnesingur, Bj. Bjarnason frá Auðsholti, og hinn frækni glímu-