Eimreiðin - 01.01.1912, Blaðsíða 38
38
ust fyrir. Pá fyrst vóru tök á að senda menn úr Reykjavík til
Islandsglímu, og vóru þeir Guðmundur A. Stefánsson og Sigur-
jón Pétursson sendir norður. Lauk þeim viðskiftum svo, að
Guðmundur A. Stefánsson vann Islandsbeltið, en Sigurjón
féll fyrir engum nema Guðmundi einum. Pá keptu um beltið 11
menn aðrir, 9 úr Þingeyjarsýslu, 1 af Akureyri, skjaldarhafi þar,
og 1 úr Eyjafjarðarsýslu. Fór glíman hið bezta fram og nú varð
engin misklíð manna á millum eða ágreiningur um byltur. Allir
4. KEPPENDUR UM ÍSLANDSBELTIÐ í RVÍK 12. JÚNÍ 1910.
(Guðmundur A. Stefánsson. 2. Hallgr. Benediktsson. 3. Kári Arngrímsson. 4. Eiður
Guðmundsson. 5. Sigurjón Pétursson. 6. Sigurður Sigurðsson. 7. Jón Vigfússon. 8.
Jónas Snæbjörnsson. 9. Sigvaldi Sveinbjörnsson.)
duttu svo hreinlega, að ekki var um að villast. Pótti það sýnt, að
Sunnlendingarnir væru hinum fremri í glímulistinni, og tóku Norð-
lendingarnir því með riddaralegri kurteisi, og kváðust vel ánægðir,
því þeir hefðu ekki betri leikbræður fyrir hitt. Guldu Sunnlend-
ingarnir þau ummæli í líkri mynt og riðu til átthaga sinna með
íslandsbeltið. Pótti Reykvíkingum vel, er það var nú þar niður
komið, og þökkuðu glímuköppunum fyrir frammistöðuna.
Fimta Islandsglíman fór fram í Reykjavík u júní 1910, því
nú átti beltishafi þar heima. Hlökkuðu bæjarbúar nú mjög til að
fá að horfa á Islandsglímu, og ekki var áhuginn minni hjá glímu-