Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1912, Page 25

Eimreiðin - 01.01.1912, Page 25
25 Þessar konur, sem ég hefi drepið á nú um stund, hafa flest- ar eða allar komið til leiðar stórfeldum harmsögum — viljandi eða óviljandi. Tilfinningar þeirra og örlyndi hafa blásið að kol- unum, sem lágu fyrir þeim, og hleypt eldi í atburðina.—Eg held, að fornmenn hafi haft þetta í huga, þegar þeir sögðu, að köld væru jafnan kvenna ráð. Eeir hafa átt við það, að þeim væri tamari æst tilfinning, heldur en djúphygni og glöggrýni, og að þátttaka þeirra væri fremur til að æsa ólguna, heldur en til að sefa hana. Pví verður heldur ekki neitað, að vígaferli og vand- ræði hlutust oft af konum í fornöld. Stundum eggjuðu þær til at- göngunnar með heitum frýjuorðum, svo sem Hildigunnur og Bergþóra, Eorgerður Egilsdóttir og Euríður, móðir Vígabarða, og ótal fleiri; eða þær verða orsök til ófriðar óviljandi, eins og Helga fagra og Kolfinna, sem Hallfreður unni vandræðaskáld. En hitt gerðist stundum, að konur afstýrðu vandræðum og unnu að sættum. Móðir Arnórs kerlingarnefs kom því til leiðar, að Arnór bannaði að farga gamalmennum í Skagafirði, í hallærinu mikla á söguöldinni, og hún orkaði því við son sinn, að hann bauð til sín þeim vesalingum, sem enga úrkosti áttu. Bergþóra hvatti Njál til að færa Gunnari mat og hey, þegar hann skorti eitt sinn, vegna hjálpfýsi sinnar. Jórunn Einarsdóttir frá Everá sætti Eorkel Geitisson og Bjarna Broddhelgason, sem enginn gat áður sætt. Halldóra kona Víga-Glúms fór út á Hrísateig í blóð- ugan bardaga, til að binda um sárin fjandmannanna, jöfnum hönd- um og sinna manna. Og mörg dæmi mætti nefna enn. Nú er eitt eftir, sem ekki má gleymast, þegar um þetta efni er að ræða. Sú kona er ónefnd enn, sem mestan þátt hefir átt í öllum Islendingasögum og öllum Noregskonungasögum. Hún hefir reynd- ar komið öllu af stað, sem gerst hefir sögulegt um 1200 ár í Nor- egi og hér í landi — hvorki meira né minna. Eegar Haraldur hárfagri var nýtekinn við föðurleifð sinni, var hann fylkiskonungur fyrst um sinn. Þá var yngismær ein á Hörðalandi, sem hét Gyða. Hún var dóttir Eiríks konungs á Hörðalandi og þótti vera mikillát. Haraldur konungur sendi menn eftir Gyðu og vildi gera til hennar skyndibrullaup. Hann þurfti mikils með í þeim efnum. »En er sendimenn kómu þar, báru þeir fram erindi sín fyrir meyna. En hún svaraði svá, at hún vill ekki spilla meydómi sín-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.