Eimreiðin - 01.01.1912, Page 70
70
heimahúsum og að kalla má alveg verkfæralaust. Baðker og þurka einu
tilfærin, sem við þarf.
Vér viljum ráða öllum til að fá sér þessa bók, lesa hana og hag-
nýta. Þeir, sem það gera, munu sanna, að þeir stórgræða á því. Og
sérstaklega ættu allir foreldrar að láta börnin sín iðka þá leiki, er bók-
in kennir. þeir geta reitt sig á, að þá fara ýmsir af þeim sjúkdómum,
sem nú leggja svo margan ungling í gröfina, erindisleysu á þeirra heim-
ili. Og þá geta þeir huggað sig við, að hafa eftirlátið ættjörð sinni
hraustari og dugmeiri kynslóð, en foreldrar þeirra gerðu á næstliðnum
öldum. y q
KRISTJÁN JÓNSSON LÆKNIR. Minningarrit. Rvík 19n.
Minningarrit þetta er bæði hugnæmt og smekklegt, og samsvarar
því ágætlega minningu okkar allra um Kristján sáluga — okkar skóla-
bræðra hans og annarra, sem hann þektum. Því hann var hvers manns
hugljúfi bæði í sjón og reynd.
Minningarritið er útgefið af ættingjum hans, og er þar fyrst um
ætt hans og uppvöxt, því næst minningarrorð vina á íslandi (Guðm.
Magnússonar prófessors, Sigurðar Sigurðssonar ráðanauts og f’órhalls
Bjarnarsonar biskups), þá minningarorð vina í Ameríku (í amerískum
blöðum) og loks erfðaskrá Kristjáns heitins, minningarljóð o. fl.
Og slíkra manna er vert að minnast, sem Kristján læknir var —
ekki aðeins fyrir ættingja, kunningja og vini, heldur fyrir íslendinga
yfirleitt. Því að þó að hann ynni lífsstarf sitt í annarri heimsálfu, þá
vann hann jafnt og stöðugt fyrir ættjörð sína. Hann vann henni sæmd
með allri framkomu sinni, sem hlaut að auka álit á íslendingum hjá
öllum, sem honum kyntust. Og hann vann henni líka fé, þar sem hann
ráðstafaði mestum hluta eigna sinna svo, að þær skyldu renna heim
fil íslands, bækur til læknaskólans, en annað fé til systkina hans, sem
aftur hafa varið 10,000 kr. til minningar um hann, til hjálpar berkla-
veikum í Heilsuhælinu á Vífilsstöðum. Og betra gátu þau ekki til fund-
ið, er frekar yrði í samræmi við lífsstarf hans og hugsunarhátt. Í’ví
hann skrifaði vini sínum einu sinni’ þessi orð: nHjálp sú, er ég get gef-
ið öðrum, verður að vera sœla lífs míns.<s. Hún verður nú líka til að
halda minningu hans á lofti urn ókomnar aldir.
Kristján læknir Jónsson vann þannig íslandi frægð og fé í lifanda
lífi, og dáinn vinnur hann, eða ávöxturinn af lífsstarfi hans, börnum
þess bót meina sinna.
Segið börnunum lífssögu hans, eða látið þau lesa hana. Hún er
svo fögur og góð til eftirbreytni. y_ q
BÓLU-HJÁLMARSSAGA. Efni til hennar hefir safnað Símon
Dalaskáld. Ritað hefir og aukið Brynjúlfur Jónsson frá Minna-
Núpi. Eyrarbakka 19n.
Hún verður lesin þessi bók, ekki hætt við öðru. f’ví alla, sem
kynst hafa kvæðum Hjálmars og heyrt um hans miklu einkennileika
og forneskju-náttúru, mun langa til að sjá, hvað hér sé af honum
sagt. Og þeir verða líka fróðari eftir en áður um líf hans og alla háttu.