Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1912, Qupperneq 71

Eimreiðin - 01.01.1912, Qupperneq 71
Því svo má kalla, að lífsþráður hans sé hér rakinn frá vöggu til graf- ar, þó hann sé allmjög með bláþráðum og einkum stiklað á öllum snurðunum. Fá menn þar margt og mikið að vita um bæði menn og málefni um daga Hjálmars í þeim sveitum, er hann dvaldi í, og alt jafnan kryddað með kviðlingum og skringisögnum, svo að frásögnin verður hin skemtilegasta. En frekar er hér þó um efni í æfisögu Hjálm- ars eða drög til hennar að ræða en fullkomna sögu, því óvíst er um tímaröð viðbuiðanna víðahvar (ártöl sjaldan tilfærð), og enginn tilraun gerð til að draga kjarnann út úr öllu saman, né bregða upp neinni heildarmynd af Hjálmari sem skáldi og manni. Verða menn því ólíku fróðari um Hjálmar af hinni stuttu æfisögu Hjálmars eftir Hannes Haf- stein framan við útgáfuna af kvæðum Hjálmars, því þar er hann sýnd- ur í kvikmyndasýning, frá ýmsum hliðum og í ýmsum stellingum, en lifandi og ljóst. En þessi saga er góð til uppfyllingar, ef alt er þar á- reiðanlegt, sem höf. mun hafa látið ;sér hugleikið, enda auðsætt, að reynt er að forðast alla hlutdrægni. Ovíst teljum vér þó, t. d., að rétt sé, að vísan: »Auðs þó beinan akir veg« sé eftir annan mann en Hjálmar; því bæði virðist hún sveija sig í ættina og svo segist H. Hafstein hafa prentað flestöll kvæði Hjálmars eftir eigin handriti hans (en önnur eftir afskrift séra I’. J. eftir eigin handriti Hj.), og þar sem vísan er í útgáfu hans, er frekar á því að byggja en lausum munn- mælum. Fleira mætti vafasamt nefna, þó hér sé ekki talið. En hvað um það, bókin er skemtileg, eins og hún er, og allir ósviknir af að kaupa hana. Q, \ FRÓÐI. I, i — 2. Winnipeg ign, Svo heitir nýtt tímarit, sem séra Magnús Skaptason er nýfar- inn að gefa út í Ameríku; á það að verða mánaðarrit og koma út í 12 þriggja arka heftum á ári og kosta g 1,50 árgangurinn. Ætlast er til, að efnið verði sem margbreyttast, en trúmálum og pólitík þó ekki sint til muna. Meginið í hinum útkomnu heftum eru þýddar sögur, sem líta út fyrir að vera dáindis skemtilegar, en þar sem langt virðist í land, þangað til þeim er lokið, verður ekki frekar um þær dæmt. En ann- ars er efnið í hinum útkomnu heftum óneitanlega fremur veigalítið og er vonandi, að ritið verði dálítið kjarnmeira, þegar fram í sækir, enda mun ritstjórinn hafa hug á að láta svo verða. Frágangurinn er vandaður og smekklegur, málið hreint og gott og prófarkalesturinn svo frábær, að þar finst víst tæplega nokkur prent- villa. Enginn óþarfi að taka slíkt fram, jafnsjaldgætt og það er nú orðið í íslenzkum bókum og blöðum, aUflestum, bæði - austan hafs og vestan. y Q, BARNALÆRDÓMUR eftir únítarískri kenningu. Winnipeg 1911. Nýstárlegt barnalærdómskver að tarna. Það skiftist í 3 höfuðdeild- ir: I. Trúaratriðin, sem aftur skiftast í trúarsáttmála, boðorðin og faðir- vor, II. trúarlærdóminn, sem skiftist í 7 kafla, og III. siðalærdóminn, sem skiftist í 5 kafla.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.