Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1912, Qupperneq 74

Eimreiðin - 01.01.1912, Qupperneq 74
74 d. »Faxarudfjord« (I, 81) f. Fáskrúðsfjorð, »Ermund Wulf« (I, 94) f. Örum & Wulff, »Fjallarhöfn« (I, 110) f. Fjallahöfn, »eldstofa« (I, 132) f. eldhús, »falkur« (II, 32) f. fálki, »Stórigjá« (II, 63 — 4) f. Stóragjá, »Stóri Viti« (II. 74) f. Stóravíti, »Náttfarar- vík« (II, 93) f. Náttfaravík, »Edi« (II, 124) f. Eiði o. s. frv. En þetta skiftir í rauninni minstu, þar sem bókin að öðru leyti er jafnsnjöll og hún er. Hún verður eflaust lesin mikið, og getur þá varla hjá því farið, að hún dragi ferðamenn til landsins, enda eru aftast í bókinni góðar leiðbeiningar fyrir þá, sem ferðast vilja til Islands. Óskandi að Svíar vildu senda oss marga slíka gesti sem barón Klinckowström. y q • JÓN SVEINSSON: ZWISCHEN EIS UND FEUER. Ein Ritt durch Island. Breslau 1911. Svo kallast ferðasaga séra Jóns frá íslandi, sem nýlega er út komin í þýzkri þýðingu eftir skáldið Johannes Mayrhofer, og gefin heíir verið út í »Woywods Volks- und Jugend-Bibliothek«. Er ferðasagan sjálf hin skemtilegasta og alþýðlegri en nokkur- önnur ferðasaga frá íslandi, sem vér þekkjum, eins og áður hefir verið á minst í Eimr.; og þar sem þýzka útgáfan þar að auki er prýdd mörgum góðum myndum, má búast við, að hún nái góðum tökum á þýzkum lesendum. Hún gæti og.verið ágæt fyrir fslendinga, sem vilja læra þýzku af* sjálfsdáðum eða tilsagnar- lítið, og væri því ekki úr vegi fyrir íslenzka bóksala að hafa hana á boðstólum. V. G. ANDREAS HEUSLER: DAS STRAFRECHT DER ISLÁNDERSAGAS. Leipzig 1911. Það er merkileg bók þetta, bæði að efni og formi, og má með sanni segja, að þar sé margt skýrt og sýnt í nýju ljósi, sem áður hefir verið í þoku hulið eða enginn veitt eftirtekt. Eins og titillinn sýnir, er efni bókarinnar það, að sýna, hvernig hegningarlög íslendinga hafi verið á söguöldinni, eftir því sem þau birtast í sögunum, og að hve miklu leyti þau komi heim við eða sé frábrugðin lagafyrirmælum Grágásar. Um þetta hefir áður verið ritað talsvert af ýmsum, en þó vanalega aðeins um einstök tilfelli eða um einstakar sögur, og þá jafnaðarlegast aðeins sem aukaatriði eða til viðbótar við framsetning á fyrirmælum Grágásar. Og hafi þá ekki alt komið heim við reglurnar í Grágás, hafa menn oftast álitið, að frásögn sögunnar hlyti að vera röng, en þö stundum orðið að játa, að þar gæti verið um eldri réttarreglur að ræða, sem hefðu verið orðnar breyttar, þegar Grágásarlög vóru færð í letur. En prófessor Heusler tekur allar sögurnar fyrir í einu lagi og rekur hegningarlög sögualdarinnar út úr þeim, sem sjálfstæðum og áreiðanlegum heimildarritum, án tillits til þess, hvort réttarreglur sagnanna komi heim við ákvæði Grágásar eða ekki. Kemur þá í ljós, að mjög mikill munur er á þeim hegningarlögum, sem birtast í sögunum, og fyrir- mælum Grágásar. Fn höf. álítur, að sjaldnast sé þó um villur að ræða í þessu efni í sögunum, heldur stafi mismunurinn ýmist af því, að sögumar skýri frá eldra réttar- ástandi en Grágás, eða að hegningarlög sagnanna séu eins og þau urðu í fram- kvæmdinni, í sjálfu lífinu, þar sem aftur hegningarákvæði Grágásar séu »teóret- iskar« lagasetningar, sem skiljanlegt sé að erfitt hafi veitt að fá framfylgt, þar sem ekkert sameiginlegt framkvæmdarvald var til í landinu. Að þessu sé í raun og veru svo varið, má líka sjá af því, að Sturlungu ber í þessu efni saman við hinar eldri sögur, og munar oftast í sömu atriðum og þær frá Grágás.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.