Tölvumál - 01.10.1994, Qupperneq 16
Október 1994
að huga að hvernig nýta mætti
þessa nýju möguleika í fræðslu-
tilboði skrifstofunnar. Skólaárið
92-93 var ákveðið að gera tilraun
með notkun tölvusamskipta í
bland við hið hefðbundna fræðslu-
fundafoiTn. Hér á eftir verður stutt-
lega greint frá þeim þrem tilraun-
um sem gerðar hafa verið á
Fræðsluskrifstofunni á síðustu
tveim skólaárum. Fyrst og fremst
verður fjallað um það hvernig
tölvusamskiptin voru notuð í
fræðslustarfinu og reynt að leggja
mat á hvernig til tókst.
Umsar 92-93
Við undirbúning námskeiðs,
sem halda átti á skólaárinu 92-93,
um hlutverk umsjónarkennarans
vaknaði fljótt sú hugmynd að nota
tölvusamskipti í bland við hefð-
bundnari aðferðir. Rætt var við
starfsmenn menntanetsins um
samstarf og fékk þessi hugmynd
góðarundirtektir. Varstrax heitið
stuðningi í því formi að starfs-
menn netsins færu í alla þátttöku-
skólana og hjálpuðu kennurum
að tengjast. Markmið þessa nám-
skeiðs var að efla umsjónarkenn-
arann í starfi og gera hann færari
um að takast á við þau fjölþættu
verkefni sem starfinu fylgja.
Leiðimar sem valdar voru að þessu
markmiði, voru bein fræðsla auk
samvinnu og skoðanaskipta um-
sjónarkennara umdæmisins m.a.
með tölvusamskiptum.
Skipulag námskeiðsins var
með þeim hætti að snemma í nóv-
embervoru haldnirfræðslufundir
á þrem stöðum í umdæminu,
Grunnskólanum á Raufarhöfn,
Borgarhólsskóla á Húsavfk og
Lundarskóla á Akureyri. Þátttakan
var mjög góð því samtals sóttu 59
kennarar frá 14 skólum fundina.
Sama dagskrá var á öllum þessum
fundum en þar var einkum fjallað
um samskipti kennara og nem-
enda, kennara og foreldra, nem-
enda innbyrðis og kennara inn-
byrðis. Eftir að þessum fundum
lauk var umræðan flutt yfir á
Ismennt þar sem umræða um
hlutverk umsjónarkennarans hélt
áfram. I upphafi kynntu þátttak-
endur sig með stuttu bréfi þar sem
þeir skýrðu frá hvaða bekkjum
þeir kenndu, hversu lengi þeir
hefðu kennt og fleira í þeim dúr.
Þetta þótti nauðsynlegt bæði til
að þjálfa þátttakendur í tölvusam-
skiptunum og einnig vegna þess
að sumir þessara kennara höfðu
aldrei hist. Til að gera þetta eilítið
persónulegra voru sendar myndir
frá fundunum þremur í alla þátt-
tökuskólana til að fólk gæti virt
fyrir sér þá sem þeir voru að skipt-
ast á skoðunum við. Eftir þessa
kynningu upphófst hin eiginlega
umræða á netinu. Umsjónarmenn
vörpuðu fram spurningum tengd-
um viðfangsefninu til íliugunar
og umfjöllunar. Einnig höfðu
kennararnir í skólunum bein
samskipti sín á milli. Þessar "um-
ræður" héldu síðan áfram fram á
vorið. Um miðjan apríl var sam-
eiginlegur fundur í Hrafnagils-
skóla þar sem allir þátttakendur
hittust. Efni þess fundar var tví-
skipt. Fyrst fjallaði Hafdís Guð-
jónsdóttir, kennari íLækjarskóla,
Hafnarfirði um foreldrasamstarf,
síðan var einskonar uppgjör eða
mat á vetrarstarfinu.
Þegar á heildina er litið er
óhætt að fullyrða að bærilega hafi
til tekist. Líflegar umræður urðu
á netinu um hlutverk umsjónar-
kennarans og einnig urðu um-
ræður í skólum þátttakenda meðal
kennara sem ekki tóku þátt í nám-
skeiðinu. Eins þjálfuðust þátttak-
endur heilmikið í notkun tölvu-
samskipta. V erið var að prófa nýja
samskiptaleið ífræðslustarfi skrif-
stofunnar, sem varað mörgu leyti
frábrugðin þeim sem höfðu áður
verið reyndar. Sumt hefði að sjálf-
sögðu mátt fara betur og er ýmist
um að kenna skipulaginu eða
óvana þátttakenda og umsjónar-
manna af svona vinnubrögðum.
Eitt af því sem fólk saknar í tölvu-
samskiptum er líkamsmálið. Það
er tvennt ólíkt að ræða saman
augliti til auglitis eða skiptast á
skoðunum skriflega um tölvunet.
Það að sjá ekki svipbrigði á þeim
semmaðurerað "ræða" viðgetur
verið skrambi erfitt. Að vaipa fram
spurningu í umræðum eða að
koma með hana skriflega er líka
ólíkt. Einnig fyllist fólk oft óör-
yggiskennd ef það fær engin svör
við því sem það hefur fram að
færa, það fær ekki einu sinni að
vita hvort boðin hafi komist alla
leið. Þarna kom glögglega í ljós
að sömu lögmál virðast gilda hvað
varðar sambandið milli virkni
þátttakenda og hópastærða í um-
ræðuhópum á tölvuneti eins og í
hefðbundnum umræðuhópum þar
sem fólk er augliti til auglitis. Því
stærri sem hópurinn er því færri
óvirkir.
Umsar 93-94
Við skipulagningu fræðslu-
fundatilboðs Fræðsluskrifstof-
unnar fyrir skólaárið 93-94 var
ákveðið að halda áfram með nám-
skeiðið um hlutverk umsjónar-
kennarans. Þá þótti og sjálfsagt
að halda áfram tilraunum með
notkun tölvusamskipta og byggja
á þeirri reynslu sem fengist haíði
árið á undan. Viðfangsefni vetr-
arins var skipt í þrennt, nántsum-
hverfi, kennsla og uppeldi og sam-
skipti. Ákveðið var að auk beinnar
fræðslu skyldu þátttakendur vinna
í sameiningu sjálfsmatshefti fyrir
hvert viðfangsefni, sem nýst gæti
kennurum í starfi. Upphaf nám-
skeiðsins var með sama sniði og
áður þ.e. þrír samskonar fundir í
jafn mörgum skólum. Þátttakan
var svipuð og fyrra árið eða 56
kennarar frá 15 skólum. Þetta var
16 - Tölvumál