Tölvumál


Tölvumál - 01.10.1994, Side 28

Tölvumál - 01.10.1994, Side 28
Október 1994 Þær þýðingar sem verið er að vinna að eru: Froskurinn Flosi, forrit sem nýbúið er að þýða og er að koma út. Músastýrð rannsókn, byggð á forvitni, sem getur þjálfað lestur og rökhugsun. Darri dreki, þrautalausna- forrit, næstum tilbúið. "Math Circus", forritið er stærðfræðifoiTÍtmeðmöguleikum á þyngdarstillingu. Músin Marteinn, hollensk mús sem lendir í ævintýrum í Amsterdam og nágrenni. Þrauta- lausn og landkynning. Nánast tilbúið. Teikniforritið Klessa er næst- um tilbúið. Áhersluatriði félags- ins í tengslum við tölvur og skólastarf Félagið leggur rnikla áhersl u á að það sem unnið er á þess vegum sé hvorutveggja, kennslufræði- lega og forritunarlega vel unnið. Hefur samvinna þessara faghópa leitt af sér ákveðnar áherslur sem farið er eftir við hönnun forrita. Þar ber hæst, að leitast er við að hafa forritin einföld og án alls óþarfa "Ijósasjóvs" Það er, að nýta eingöngu þá tækni sem þarf, til að kennslufræðilegumarkmiði sé náð með notkun forritsins. For- ritarar vilja eðlilega nýta tæknina til fulls, en oft getur verið kennslu- fræðilega rétt að vannýta tæknina. Annað sem félagið leggur áherslu á, er að vinna með slökkl á tölvunni. Það er, að nýta tölvuna sent kveikju, þannig að nemendur halda áfram vinnu með hugmyndir sem spretta út frá tölvuvinnunni. Verkefnin sem fylgja sumum for- ritunum geta nýst hér en þau eru ekki forsenda, nemendur og kenn- arar geta unnið eftir eigin leiðunt. Félagið hefur sent frá sér mark- miðsgreiningu hluta forritanna sem það hefur gefið út. Þessari markmiðsgreiningu er ætlað að vera kennurum til aðstoðar við að skipuleggja kennslu sína, þannig að auðveldara sé að grípa til tölv- unnarþegarþaðhentar. Ádöfinni er að greina öll forrit félgsins og einnig að vinna að skráningu á hvernig þau geta tengst aðal- námskrá grunnskóla, þannig að auðvelt sé fyrir kennara að nýta sér þau við skipulagningu á eigin bekkjarnámskrá. Einnig hafa sum foritin verið flokkuð eftir því hvaða náms- og þroskaþáttum þau tengjast. Dæmi um hvernig hægt er aö nýta Þjálfa og Muninn saman Við lestrar- og stafsetningar- kennslu hefur verið unnið með Þjálfa og Muninn saman. Nem- andinn vinnur með þekktan texta, það er hann hefur fyrst verið lesinn á bók og nemandinn þekkir og skilur textann. Síðan er lesið í Þjálfa og unnið að því að auka leshraða. Það að hafa hraðann sjáanlegan gerir nemandanum kleift að fylgjast nteð eigin fram- vindu og er hvetjandi. Samhliða er unnið nteð Muninn. Sami texti er endurskráður með notkun tölv- unnar. Einnig er unnið með text- ann eftir upplestri eða sóknarskrift með mismikilli hjálp, s.s. að fylla inn í orðmyndabox, hafa strik fyrir hvern staf í orði, eyðufyllingum, t.d. á endingum eða erfiðum hljóðasamböndum. Muninn hefur leturgerð sem kallast strikus og er mjög einfalt að útbúa verkefn i n með leturbrey t- ingu. Einnig hefur verið búið til letur sem kallast boxus og er enn nteiri hjálp við stafsetninguna, þar sem gerð stafsins sést. Muninn og Þjálfi eru dæmi um ntjög ein- föld forrit sem gefa notanda mjög mikla möguleika. Þannig eiga forritin að vera, látlaus og án of mikilla "fídusa" sem taka orku og athygli frá kennslufræðilegum markmiðum sem stefnt er að. Þannig forrit vill TVF sjá í skólastarfi. Þóra Björk Jórsdóttir er sérkennari við Varma- hlíðarskóla Heilabrot Tvær járnbrautalestir, A og B, eru á ákveðnu augnabliki staddar 200 km hvor frá annarri og nálgast á sama spori á 50 km hraða m.v. klukkustund. (Hér er með öðrum orðum um villu í öryggiskerfinu að ræða). í sömu andrá tekur fluga nokkur flugið frá fremri enda lesta A og flýgur beint á móti lest B á 75 km hraða. (Það er Ijóst að hér er um sérlega hraðskreiða flugu að ræða, sem einungis er að finna í S-Ameríku). Þegarflugansnertirlest B snýr hún samstundis við og flýgur á sama hraða til móts við lest A. Á þennan hátt heldur vesalings flugan áfram atferli sínu, þartil hún kremst að lokum á milli lestanna (rétt áður en þær rekast hvor á aðra). Spurningin er: Hversu langt hefir flugan flogið síðan hún lagði af stað? 28 - Tölvumál

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.