Tölvumál


Tölvumál - 01.10.1994, Síða 29

Tölvumál - 01.10.1994, Síða 29
Október 1994 Til móts við ólíka heimsmynd Notkun Menntanetsins til að ná persónulegu sambandi við Indíána í Norður Ameríku Eftir Björn Bergsson Áfanginn MAN 113 Upphafið Lengi hefur verið rætt um sam- þættingu námsgreina eða opinn skóla í framhaldsskólum, en minna orðið úr framkvæmdum. I MH hefur það lengi tíðkast að kennarar fari í tíma h ver hjá öðrum og flytji spjall eða fyrirlestra um ákveðna þætti til frekari útvíkk- unar og skilningsauka á tilteknu viðfangsefni áfanga. Á vorönn 1985 kenndu saman í áfanga í almennri bókmennta- fræði um absúrdisma íslensku- kennari og enskukennari. Nýjasti áfanginn í þessum dúr í MH heitir "Eldvirkni og mannlíf á íslandi" en grein urn hann birtist í Nýjum Menntamálum fyrir skömmu (1. tbl. 12. árg. 1994). Á árinu 1987 kviknaði sú hugmynd í skólanum að búa til áfanga um Indíána í Norður- Ameríku, sem skoða mætti frá mörgum sjónarhornum samtímis. Á vorönn 1989 var síðan boðið upp á áfangann MAN 113 þar sem inntakið var: "Indíánar í Norður -Ameríku í fortíð og nútíð út frá þremur sjónarhornum, þ.e. sögulegu, mannfræðilegu og rnunn- mennta-/bókmenntalegu". Hér verður látið nægja að draga upp mjög grófar útlínur þessa áfanga en vísa í væntanlega grein í Nýjum Menntamálum varðandi nánari útlistun hans. Áfanginn er þriggja eininga og hefur verið kenndur fjórum sinnum. Með samvinnu þriggja greina töldum við, þ.e. höfundur greinarinnar senr kennir mann- félagsþáttinn, Sigurður Hjartar- son, sem kennir söguna og Terry A. Gunnell, sem kennir munn- menntir/bókmenntir, að draga mætti upp býsna skýra heildar- mynd af lífsháttum og örlögum indíána í Norður-Ameríku. Sagan gæti skýrt margt í sam- skiptum innfæddra innbyrðis og veigamikla þælti í þróunarsögu nýlendnanna í álfunni og síðar Bandaríkjanna. Munnmenntir/ bókmenntir indíána gætu varpað ljósi á ýmislegt í heimsmynd inn- fæddra og um leið skýrt margt í sögu þeirra og endurspeglað á sanra tírna ýrnsa þætti í samfélags- gerð þeirra. Mannfélagsleg úttekt á samfélögum innfæddra gæti síðan skýrt margt í bókmenntum innfæddra svo og margvísleg við- brögð einstakra þjóða og ættbálka gagnvart öðrum innfæddum og hvítu aðkomufólki. Við teljum að þetta skipulag sýni hvernig einstök fög geta tengst saman og gefið nemendum tækifæri til að sanrþættaþau þegar þeir sökkva sér niður í rnjög af- markað viðfangsefni þ.e.a.s. til- tekna indíánaþjóð í viðamikilli ritgerð. Markmið okkar er einnig að reyna að draga úr þeim "hólfa- hugsunarhætti" sem er alltof ríkjandi í skólastarfi að okkar mati, þar sem hvert fag er stundað algerlega sjálfstætt og án nokkurra tengsla við önnur fög. Skipulag áfangans Áfanginn MAN 113 er próf- laus. Nemendur vinna flestir í pörum viðamikla ritgerð þar sem ætlast er til að þeir dragi upp nokkuð heildstæða mynd af þeirri þjóð sem þeir eru að fást við. Þar með þurfa þeir að samþætta þessa þrjá sjónarhóla sem áfanginn byggist á. Beinist meginvinnan á önninni að smíði þessarar rit- gerðar. I því sambandi má vekja athygli á þætti lesturs og ritunar. Hér eru nemendur ekki að lesa einhvem fyrirfram ákveðinn texta. Þeir munu lesa margt sem ekki nýtist þeim í ritgerðinni. Ritun ritgerðarinnar beinist ekki bara að því að segja frá einhverju sem viðkennararnirvissumfyrir. Sumt af því sem þar kemur fram kemur okkur á óvart enda leggja nem- endur sig fram um að finna eitt- hvað í heimildum sem líklegt er að við vitum ekki. Nemendur verða í raun meiri sérfræðingar í tiltekinni þjóð en við kennararnir. Alls höfum við verið með um 17 þjóðir á vallista fyrir nemendur. Val á þjóðum réðst að nokkru af fjölda heimilda og gæðum þeirra, auk þess sem mið var tekið af því hversu líkar/ólíkarþjóðirnarvoru með hliðsjón af verkmenningu þeirra og atvinnuháttum, búsetu- 29 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.