Tölvumál - 01.10.1994, Side 46
Október 1994
leit í atriðaskrá eins og Hjálpin,
en einnig er hægt að gera
frjálsa textaleit í allri skjábók-
inni eða tilteknum hluta henn-
ar. Atriðaskráin er þægilegri
en í Margmiðlaranum að því
leyti, að þegar um marga staði
er að velja birtast þeir í
sérstökum renniglugga og
hægt er að flakka á milli þeirra
án þess að þurfa að endurtaka
leitina.
- Loks má nefna að Margmiðl-
arinn hefur til að bera ýmsa
eiginleika bókar í skipulagi
sínu. Forritarinn skilgreinir
flettiröð milli textasíða og not-
andinn getur síðan flett fram
og til baka að vild milli þessara
síða. I skjábókinni Talna-
greiningerflettiröðskilgreind
milli þeirra textasíða þar sem
efnið er rakið í almennum
orðum, en allartæknilegri upp-
lýsingar eru á uppflettisíðum,
faldar á bak við flettiröðina ef
svo má segja.
Eitt einkenni prentaðs máls er
að orðin koma hvert á eftir öðru,
marsera niður síðurnar og blað-
síðumar taka hver við af annarri.
Höfundar prentaðs texta taka mið
af þessu og skipuleggja efni text-
ans í línulegri röð: söguþráðurinn
er rakinn áfram, röksemdirnar
reka hver aðra og svo framvegis.
Þennan hugsunarhátt nefndi hinn
kunni fjölmiðlunarfræðingur
Marshall McLuhan "the Guten-
berg Galaxy" og fullyrti að línu-
legireiginleikarprentaðsmálshafi
mótað vestræna hugsun síðast-
liðin 500 ár. Margmiðlunin brýtur
þetta mynstur upp og tengir upp-
lýsingarnar saman í vef af stað-
reyndum þar sem hver maður
getur rakið sinn eigin söguþráð.
Hún gerir okkur líka kleift að
tengja út fyrir ramma prentaðs
máls og kyrrmynda, og flétta sam-
an í eina lifandi heild allt það sem
unnt er að framkvæma eða birta í
tölvu.
Gerð margmiðlunartexta er
tæknilega séð ekki erfið. Fyrir
Multimedia Viewer er textinn eins
og vænta má skrifaður í Word for
Windows (einnig frá Microsoft)
og tengingar milli uppflettiorða
og uppflettistaða eru settar inn
sem neðanmálsgreinar. (Þeir sem
hafa þurft að skrifa hjálpartexta
fyrir Windows forrit skulu hug-
hreystir með því að Margmiðlar-
anum fylgja réttu tólin til þess að
auðvelda gerð neðanmálsgreina).
Það sem er erfitt er að þurfa að
hugsa um texta á nýjan hátt, losna
frá söguþræðinum og læra að
spinna vef. Sú saga er hins vegar
efni í aðra grein.
Freyr Þórarinsson kennir
stœrðfrœði við
Verzlunarskóla Islands
og forritun við
Tölvuháskóla V.I.
e-mail:
freyrth@ismennt.is
Mynd 3. Textaskjár úr skjábókinni Talnagreining. Þegar notandinn smellir á orðið talnasafn fœr hann
orðskýringu í pop-up glugga. / þeim glugga er undirstrikað orðið fœrslu og þegar notandinn smellir á
það fœr hann nýjan pop-up glugga. Athugið að seinni glugginn leggst yfir þann fyrri og hylur að hluta
skýringartextann við orðið tainasafn.
46 - Tölvumál