Bókasafnið - 01.06.1996, Side 42
Kristín Bragadóttir
Gullkista
Þjóðdeild Landsbókasafns íslands - Háskólabókasafns
Þjóðdeild Landsbókasafns íslands - Háskólabókasafns er einstæð. Og
hvað skyldi nú vera átt við með því? Hún er einstæð vegna þess að hún
hefur hlutverk og skyldur sem enginn annar rækir. Hún á að standa vörð
um íslenskan menningararf, einkum það sem lýtur að prentuðu efni út-
gefnu á íslandi og því sem gefið hefur verið út um ísland og Islendinga í
útlöndum. Um einstæðan efniskost er að ræða og engin önnur stofnun í
veröldinni sinnir einmitt þessu viðfangsefni. f framtíðinni sé ég fyrir mér
mjög öfluga og eftirsótta deild. Vitaskuld er margt óunnið til þess að svo
megi verða og verkefnin mörg. Með settu markmiði má ná miklum ár-
angri.
Varaeintakasafn
Varðveisla efnis er megin skylda þjóðbókasafna um all-
an heim. Hér er átt við eintakið, sem um fram allt á að
geymast til framtíðar og einungis má grípa til í neyðartil-
fellum til dæmis til að gera eftir nýtt notkunareintak, hafi
það eintak glatast eða eyðilagst. í safni varaeintaka á allt að
vera til og það skal
vera í besta mögu-
lega ásigkomulagi.
Langt er í land
með að varaeintaka-
safninu sé sá sómi
sýndur sem nauð-
synlegt er. Það þarf
að finna því nýjan
íverustað, þar sem
það fær þanp besta
umbúnað sem kost-
ur er á.
Myndun efnis
Framtíðarverk-
efni er að koma sem
mestu efni yfir á
aðra miðla svo sem
ýmis örgögn og
geisladiska. Þetta
verður að gera bæði í verndunarskyni og til hagræðis fyrir
notandann. Þetta á einkum við um elsta efnið og allar göt-
ur fram til 1844, en þá urðu skörp skil í prentlistarsögu ís-
lendinga. Prentverkið flutti úr Viðey, þar sem það hafði
verið um 35 ára skeið og til Reykjavíkur. Prentsmiðjum
fjölgaði verulega um þetta leyti og þá auðvitað afköstum.
Mikil aukning varð nú í prentun íslendinga og upplög
urðu stærri. Fá eintök eru hins vegar til af flestu því efni
sem er eldra en frá þessum tímamótum. Af sumum verk-
um er bara til eitt einasta eintak. Liggur því í augum uppi
að aðkallandi er að vinna þetta verk fljótt og vel. Nauðsyn-
legt er einnig að mynda dagblöð og tímarit í meira mæli en
verið hefur. Þetta er sívinsælt efni, en þolir ekki mikla
notkun og við megum ekki gleyma skyldum okkar við
rannsóknarfólk framtíðarinnar. Pappír í bókum nútímans
er lélegur, þótt sérstaklega eigi það við um dagblöð. Eftir
1860 var farið að nota trjákvoðu í pappírsgerð. Fylgdu því
bæði kostir og gallar. Prentuð verk urðu ódýrari en áður og
42 Bókasafhið 20. árg. 1996
bækur gátu því orðið hvers manns eign. En böggull fylgdi
skammrifi. Gæðin eru engan veginn sambærileg við það
sem áður var. Nú stöndum við frammi fyrir þeim vanda að
nýlegt efni liggur undir skemmdum vegna lélegs pappírs
jafnt og gamalt efni sem skemmist vegna aldurs og ótæpi-
legrar notkunar.
Tímabært er að skoða möguleika á að koma ritakostin-
um yfir á aðra miðla meir en verið hefur.Ymsar gerðir ör-
gagna koma til greina og einnig skönnun efnisins. Geisla-
diskar ryðjá sér sífellt meira til rúms og er það fýsilegur
kostur fyrir efni Þjóðdeildar.
Viðgerðir
Stórátak er framundan við að gera við ritakostinn, því
margt er illa farið. Horft er með miklum áhuga til viðgerð-
arstofu hússins og
miklar vonir við
hana bundnar. Með
nútíma tækni er
hægt að ná undra-
verðum árangri við
rit, sem leikmaður
heldur að séu gjöró-
nýt. í nágrannalönd-
unum er mikið unn-
ið að forvörnum á
þessu sviði og enn-
fremur á viðgerðum
á því sem þegar er illa
farið. Miklu er hægt
að bjarga, sé það gert
í tíma.
Sérsöfnin
t svokölluðu sér-
safnarými Þjóðdeild-
ar eru 13 sérsöfn, sum gömul en önnur ný. Hvert um sig er
dýrgripur. Hér er um að ræða merkileg söfn fágætra bóka
og fagurra prentgripa. Fæst safnanna munu stækka heldur
standa hér fullvaxin. Þau geyma mikla menningarsögu og
standa sem fulltrúar einstaklinga og málefna. Hvert um sig
heldur minningu á lofti. Það á auðvitað margt eftir að gera
þeim til góða og verður það gert eftir efnum og ástæðum.
Sérsöfnin eru eftirtalin:
• Safn verka Nóbelsskáldsins Halldórs Laxness er með-
al þess sem er enn í uppbyggingu. Það telur verk skálds-
ins á íslensku svo og allar þýðingar á önnur mál. Söfnun
á efni um Halldór Laxness, sem ef til vill bætist við sér-
safnið, er framtíðarverkefni. Nú tilheyrir það efni al-
mennum ritakosti deildarinnar.
• Nonnasafh þekur efni bæði um og eftir Nonna. Það er
náma fyrir þá sem vilja kynna sér feril rithöfundarins og
jesúítaprestsins Jóns Sveinssonar.