Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1984, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1984, Blaðsíða 2
2 DV. MANUDAGUR10. DESEMBER1984. Á hátidarfundi RKÍ á iaugardaginn var margt manna og vænn hópur stórmenna með forseta íslands, biskup og nokkra ráðherra i broddi fyikingar. Rauði krossinn gaf stórgjöf á sextugsafmæli sínu: BYLTING í BARÁTTU VIÐ BRJÓSTAKRABBA Fullkomnasta brjóstaröntgentæki í heiminurn veröur bráölega tekiö í notkun hjá Krabbameinsfélagi íslands og nýtist meðal annars við hóp- skoöanir. Þaö er Rauöi kross Islands sem gefur tækiö sem er aö verömæti 2,5 milljónir króna. Tilefniö er 60 ára afmæli Rauöa krossins hér. Meö þeim aöferðum sem nú er beitt finnast ekki mein minni en einn sentímetri aö stærö. Meö þessu nýja tæki finnast hins vegar mein allt niður í 2—3 millímetra aö þvermáli. Auk þess er hægt aö ákvarða nákvæmlega hvar þau eru. Þetta á aö auka verulega batahorfur sjúklinga og minnka margaraögeröir. Brjóstakrabbamein er nú algengast krabbameina hér á landi. Þessi gjöf var tilkynnt á hátíöarfundi sem haldinn var á laugardaginn í tilefni af afmæli Rauöa krossins. Þar flutti ávarp Benedikt Blöndal, formaö- ur stjórnar RKI. Framkvæmdastjóri Alþjóöasambands Rauöa kross félaga, Hans Hoegh, flutti ræðu. Siguröur Magnússon, Olafur Mixa og Erling Aspelund fjölluöu um stofnun og starf- semi RKI. Benedikt Blöndal fjaUaöi síöan um þau tímamót sem nú eru í starfseminni. -HERB. Benedikt Biöndai hæstaréttarlögmaður, formaður stjórnar RKI, ipontu. DV-mynd: S. TAFIR í FRAKT- FLUGIFRÁ LONDON „Þaö er flöskuháls í frakt- flutningunum í London og hefur gengiö erfiölega aö koma vörum heim. Ástæöan er ekki síst sú aö við gátum enga frakt tekið í tvær vélar um síðustu helgi. Vegna slæms veöurútUts þurftu þær aö taka óvenjulega mikið af eldsneyti,” sagöi Sigurður Matthías- son, forstööumaöur fraktdeildar Flug- leiöa, í samtaU viö DV. Farþegar og bögglapóstur hafa for- gang og vöruflutningarnir eru látnir sitja á hakanum. „Þaö er óvenjumikiö um bögglapóst nú í jólaösinni og einnig mikiö um aö fólk fari til Bretlands í innkaupa- feröir,” sagði Sigurður. Á laugardag var send fraktvél til London til aö sækja þann farangur sem þar hefur beöiö. Slík vél getur tekiö 13—14 tonn af flutningi. Yfirleitt eru tvö paUaflug í viku. Þá eru tekin 79 sæti úr vélinni. Þannig er hægt aö flytja 4—5 tonn af vörum. Þessa dag- ana, þegar vélar eru yfirfullar af farþegum og mikill bögglapóstur, er ekki rými fyrir meira en um 500 kg af vörum. -A.Bj. Akureyri: AUKIÐ ATVINNU- LEYSIEN MINNK- AR FRÁ í FYRRA Atvinnulausum fjölgaði um 63 á Akureyri í nóvember frá mánuðinum á undan. Þann 30. nóvember voru 145 á atvinnuleysisskrá, 93 karlar og 52 konur. I lok október voru 82 skráöir án atvinnu. Þessar tölur eru nokkru lægri en tölumar fyrir sömu mánuöi í fyrra. I október voru 129 atvinnulausir á Akureyri en 194 í nóvember. Að sögn Hauks Torfasonar hjá Vinnumiðlunarskrifstofu Akureyrar skýrist f jölgun milli mánaða núna af því aö vinna hefur mikiö dregist saman hjá verkafólki. Vörubílstjór- ar eru líka flestir komnir á skrá. Haukur var spuröur hvort Vinnu- miölunin gæti eitthvaö hjálpaö fólki í atvinnuleit. Hann sagði aö varla væri nokkur staöur til aö benda á. Þaö væri helst aö karlar kæmust í afleysingatúra á skip og konur fengju vinnu hjá verksmiöjum Sam- bandsins. Haukur gat þess aö nokkuð væri um hringingar fólks utan af landi sem væri aö leita að vinnu á Akureyri, jafnvel af suðvesturhorn- inu. -JBH/AKUREYRI Miðstjórn ASÍ: Gegn söluskattinum „Miöstjóm Alþýöusambands Islands beinir þeirri áskorun til stjórnvalda aö þau kappkosti aö stoppa í þau göt sem á kerfinu eru, leiti aukins réttlætis í skattamálum og láti ógert aö seilast enn lengra í skattlagningu á launa- fólk.” Þetta er niöurlag ályktunar miö- stjómarinnar um söluskattsmál. Þar er sagt aö stjórnvöld hafi stórlega dregiö úr skattlagningu á atvinnu- rekstur. Á sama tíma hafi hagur heimilanna stórversnaö. Stjórnvöld láti undir höfuð leggjast aö innheimta söluskattinn. Þá minnir miðstjórn ASI á ályktun síöasta þings ASI um vaxtamál. Þar var mótmælt harölega „því vaxtaokri sem viögengst” ásamt verötryggingu lána á meöan verötrygging launa sé bönnuö með lögum. HERB 31. einvígisskákin íMoskvu: KASPAROV SLAPP MED SKREKKINN — og 26. jafnteflið leit dagsins I jós Athygli vakti viö upphaf 31. einvígisskákarmnar í Moskvu aö Karpov heimsmeistari mætti til leiks í nýjum jakkafötum, svörtum aö lit. • Þótti gárungunum sem föt þessi bæru keún af jaröarfararklæðum og leist mörgum illa á blikuna fyrir hönd áskorandans. Aörir sögöu aö föt þessi væru alls ekki ný, heldur heföi heimsmeistarinn klæöst sams konar búningi í síðustu einvígisskákinni viö Kortsnoj í Merano hér um áriö. Þótti klæðnaður Karpovs örugg vísbending þess efnis að nú skyldi láta sverfa til stáls. Og víst var það aö ekki blés byrlega fyrir áskorandann Kasparov. Ekki tókst honum aö jafna tafliö meö drottningarbragðinu aö þessu sinni og í 24. leik féll sjálft drottningarpeöiö í valinn. „Þú verður kominn til Lundúna innan þriggja daga,” sagði þá einn sovésku stórmeistaranna við frétta- ritara DV á einvíginu, enska alþjóða- meistarann David Goodman. En Kasparov var ekki á því aö gef- ast upp og náði að berja frá sér í gröfinni. Karpov eyddi miklum tíma og hafði aðeins 2—3 mínútur eftir á klukkunni á fimm leiki er Kasparov bauö jafntefli. Boðið þáöi heims- meistarmn en meö meiri tíma á klukkunni heföi hann vafalaust teflt áfram, enda var hann enn peöúiu góöa yfir. Karpov tókst því ekki aö ljúka einvíginu aö þessu sinni og enn eitt jafnteflið sá dagsins ljós. Þetta var 26. jafnteflið og enn eitt metið er því falliö — Aljekín og Capablanca geröu 25 jaíntefli í Buenos Aires 1927 og fleiri hafa jafnteflin ekki orðið í heúnsmeistaraeúivígi fyrr en nú. Hvítt: Anatoly Karpov Svart: Garrí Kasparov Drottnmgarbragð. 1. Rf3 (15 2. d4 Rf6 3. c4 e6 4. Rc3 Be7 5. Bg5 h6 6. Bh4 0-0 7. e3 b6 8. Hcl Bb7 9. Be2 Rbd710. cxd5 exd511.0—0 c5 12. Da4 a6 13. dxc5 bxc5 14. Hfdl Db615. Db3 Da7 Meistaramir léku þessa leiki hratt og höföu nú notað innan viö 10 mínútur hvor af túna sínum. Eftú- síöasta leik sinn stóö Kasparov upp og gekk um gólf, aö því er virtist öruggur meö sjálfan sig. Karpov rýndi í stööuna og lék ekki fyrr en eftir 20 mínútur. 16. Bg3 Had817. Reld4?! Nú hugsaöi Kasparov sig um í 20 minútur en e.t.v. var hann samt of bráöur á sér. Karpov nær aö sækja aö þessu peði. 18. exd4 cxd4 19. Ra4! Hc8 20. Hxc8 Hxc8 21. Bc4 Hf8 22. Dd3 Bc6 Ekki gengur nú eöa í næsta leik 22. - Rc5 23. Dxd4 Hd8 24. Dxd8+ Bxd8 25. Hxd8+ Kh7 26. Bb8 Da8 27. Rb6 og vinnur. 23. Bb3 Re4 I blaðamannaherberginu var þetta álitið best því svartur getur ekki valdað d-peöiö. Kasparov freistar þess í framhaldinu að flækja tafliö og tekst aö koma Karpov í túnahrak. 24. Dxd4 Db7 Eftir 24. —Dxd4 25. Hxd4 Bf6 26. Hc4 Bxa4 27. Hxa4 Rxg3 28. hxg3 'Bxb2 29. Hxa6 veröur svartur peöi undir í endatafli. 25. Bd5 R7f6 26. Bxc6 Dxc6 27. b3 He8 28. Dd3 h5 29. Dc4 Db7 30. Rf3 Hc8 31. De2Rg4! Leikiö eftir 17 múiútna umhugsun og nú átti hvor aðeins 13 mínútur eftir til aö ná túnamörkunum viö 40. leik. 32. Re5 Rxg3 33. hxg3 Db5! 34. Rc4 Auövitað ekki 34. Dxb5 axb5 35. Rb6 Hc2! og svartur nær gagnfærum. Hvítur á nú aðeins eftir aö koma riddara sínum á a4 í leikinn og þá stendur hann meö páúnann í höndunum. 34. —BÍ635. Rab6 He8 Um leið og Kasparov lék bauö hann jafntefli sem Karpov þáöi. Kasparov átti 8 mínútur eftir en Karpov aöeins 2—3 mínútur. Enn er hvítur peöinu yfir en svörtu mennirnir eru í ógnandi stöðu. Riddarinn á g4 gerir það aö verkum aö hvítur verður sífellt að vera á varöbergi gagnvart máthótunum í boröúiu og jafnframt veröur hann aö hafa gætur á f2-peðinu. Þannig er 36. Dc2? svaraö meö 36. — Bd4! og 36. Dd3 meö 36. — Db4! 37. Dfl Bd4! 38. Rd5 Dc5. Best er 36. Dfl og þá þarf hvítur aöeúis ernn leik, 37. Rd5, til að tryggja stöðuna. Meö meiri túna eftir á klukkunni hefði Karpov vafalaust teflt til þrautar. Staöan í einvíginu er því óbreytt, 5-0 Karpov í vil, og enn þarf hann einn sigur til viðbótar. -JLA.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.